Fjórtán til sextán farþegar að meðaltali í hverjum næturstrætó

Notkun næturstrætó er þokkaleg, en þó er farþegafjöldinn undir væntingum, að sögn fyrirtækisins. Næturaksturinn hófst að nýju um helgar í júlí en ákveða á í september hvort honum verði haldið áfram.

Næturstrætó fer úr miðborginni um nánast um allt höfuðborgarsvæðið, en síðustu vagnarnir rúlla af stað úr miðborginni laust fyrir kl. 4 á laugardags og sunnudagsmorgnum.
Næturstrætó fer úr miðborginni um nánast um allt höfuðborgarsvæðið, en síðustu vagnarnir rúlla af stað úr miðborginni laust fyrir kl. 4 á laugardags og sunnudagsmorgnum.
Auglýsing

Ekki er verið að nota næturakstur Strætó, sem hófst aftur um helgar í júlí, eins mikið og vonir stóðu til, sam­kvæmt kynn­ingu sem stjórn­ar­menn í Strætó bs. fengu frá fyr­ir­tæk­inu á stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku.

Í kynn­ing­unni kom fram að á bil­inu 300-340 far­þegar hefðu verið að nýta sér akst­ur­inn á hverju kvöldi fyrstu fjórar helg­arnar sem næt­ur­strætó keyrði, eða um 14-16 manns að með­al­tali í hverja næt­ur­ferð sem ekin er.

Strætó segir í sam­an­tekt um næturakst­ur­inn að notk­unin hafi verið „þokka­leg, en undir vænt­ingum miðað við óskir um end­ur­vakn­ingu næt­ur­leiða“, en nokkuð ákall var uppi um það að Strætó myndi hefja akstur að næt­ur­lagi á ný um helgar eftir að skemmt­ana­líf færð­ist í samt horf við aflétt­ingu sam­komu­tak­mark­ana vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Auglýsing

Í fund­ar­gerð stjórnar Strætó segir að staðan á næturakstri verði „end­ur­met­in“ í sept­em­ber, en þegar ákvörðun var tekin um að hefja næturakst­ur­inn að nýju var það gert í til­rauna­skyni fram til loka sept­em­ber.

Fram hefur komið í máli Jóhann­esar S. Rún­ars­sonar fram­kvæmda­stjóra Strætó að fram­tíð næturakst­urs­ins sé háð því að fólk noti þjón­ust­una.

Leiðin í Hafn­ar­fjörð mest notuð

Í næturakstr­inum keyrir Strætó alls sjö leiðir frá mið­borg­inni, sex þeirra eru með þrjár brott­farir og ein með fjór­ar. Sam­kvæmt því sem fram kemur í sam­an­tekt Strætó er leiðin sem liggur í Hafn­ar­fjörð mest not­uð, en sú sem liggur vestur í bæ og út á Sel­tjarna­nes minnst not­uð.

Þetta mun vera svipað notk­un­ar­mynstur og var áður þegar næt­ur­leiðir Strætó keyrðu, en akstri næt­ur­strætó var hætt þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á í upp­hafi árs 2020 og allt skemmt­ana­líf lagð­ist af.

Í kynn­ingu Strætó segir að allt hafi gengið vel í tengslum við akst­ur­inn og að ekki hafi heyrst af neinum telj­andi vand­ræð­um. Auk þess segir að búast megi við „meiri notkun þegar sum­ar­leyfum lýkur og atvinnu­lífið og skólar fari á fullt“ og þess einnig getið að notk­unin á næt­ur­strætó þessar fyrstu helgar ætti að vera að létta eitt­hvað á leigu­bíla­vand­ræðum úr mið­borg­inni, sem borið hefur tölu­vert á í sum­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent