Aldrei fleiri hælisleitendur yfir Ermarsundið á einum degi

Tæplega 1.300 hælisleitendur sigldu yfir Ermarsundið í gær á smáum bátum. Aldrei hafa fleiri freistað þess að komast þessa leið til Bretlands á einum degi.

Hópur hælisleitenda, m.a. barnafjölskyldur, koma til hafnar í Dover eftir förina yfir Ermarsundið.
Hópur hælisleitenda, m.a. barnafjölskyldur, koma til hafnar í Dover eftir förina yfir Ermarsundið.
Auglýsing

Um 1.300 hæl­is­leit­endur um borð í 27 smáum bátum komu til hafnar í borg­inni Dover á Bret­landseyjum í gær, mánu­dag. Aldrei hafa fleiri hæl­is­leit­endur farið yfir Ermar­sundið frá Frakk­landi og Bret­lands á einum degi frá því að taln­ingar hófust árið 2018. Leiðin er hættu­leg enda veður válynd á sund­inu.

Stöð­ugur straumur flótta­fólks er yfir Ermar­sundið en skýr­ingin á þessum gríð­ar­lega fjölda er talin sú að þrjá dag­ana á undan var veðrið sér­lega slæmt og engir lögðu á sundið í þessum til­gangi.

Auglýsing

Það sem af er ári hafa yfir 22.670 manns farið um Ermar­sundið til Bret­lands á litlum bát­um. Á sama tíma­bili í fyrra var fjöld­inn 12.500.

Nið­ur­staða skýrslu sem unnin var fyrir breska þingið bendir til að fjöldi hæl­is­leit­enda eigi eftir að halda áfram að aukast á næstu mán­uðum og talið er að 66 þús­und manns eigi eftir að leita verndar í land­inu á þessu ári.

Við­bragð breskra stjórn­valda hefur m.a. falist í þeirri umdeildu ákvörðun að senda alla hæl­is­leit­endur til Rúanda á meðan þeir bíða úrlausnar sinna mála. Í sumar stóð til að fljúga fyrstu vél­inni, fullri af hæl­is­leit­endum til Afr­íku­rík­is­ins en henni var frestað á síð­ustu stundu eftir nið­ur­stöðu mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu.

Bretar hafa und­an­farið sett fjár­magn til vökt­unar á ströndum Frakk­lands til að reyna að koma í veg fyrir að fólk leggi í sigl­ing­una yfir sund­ið.

Að minnsta kosti 203 mann­eskjur hafa drukknað á leið­inni frá norð­ur­hluta Frakk­lands til Bret­lands frá árinu 2014. 27 drukkn­uðu í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent