Fleiri ferðamenn á átta mánuðum en allt árið 2012

13958698740_8d204197d7_o.jpg
Auglýsing

Erlendir ferða­menn í ágúst voru 153.400 tals­ins. Það sem af er ári hafa 699.810 manns farið um Kefla­vík­ur­flug­völl, sem er 23,5 pró­sent aukn­ing milli ára frá ára­mótum frá því sem var á sama tíma­bili í fyrra. Þótt enn sé þriðj­ungur eftir af árinu eru ferða­menn þegar orðnir fleiri en þeir voru allt árið 2012. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Ferða­manna­stofu.

Til­kynn­ingin í heild sinni:

„Þótt enn sé þriðj­ungur eftir af árinu eru erlendir ferða­menn orðnir fleiri en árið 2012, fyrir aðeins tveimur árum. Þeir voru 153.400 í nýliðnum ágúst, sam­kvæmt taln­ingum Ferða­mála­stofu í Flug­stöð Leifs Eiríks­son­ar, sem gerir tæp­lega 700 þús­und ferða­menn frá ára­mót­um.

Auglýsing

Aukn­ingin í ágúst nemur 16,4% milli ára. Vart þarf að taka fram að aldrei hafa jafn margir ferða­menn verið hér í ágúst og nú og raunar aldrei fleiri í einum mán­uði frá upp­hafi.

Banda­ríkja­menn og Þjóð­verjar fjöl­mennir



Banda­ríkja­menn voru líkt og und­an­farna mán­uði fjöl­menn­astir eða 14,7% af heild­ar­fjölda ferða­manna í ágúst en fast á eftir fylgja Þjóð­verjar með 12,6% af heild. Skáru þessar tvær þjóðir sig nokkuð úr en næst komu Frakkar (9,8%), Bretar (7,3%), Ítalir (5,1%) og Spán­verjar 4,7%. Sam­tals voru 10 fjöl­menn­ustu þjóð­ernin með 69% af heild­ar­fjölda ferða­manna.

Af ein­staka þjóð­ernum fjölg­aði Banda­ríkja­mönn­um, Frökk­um, Kana­mönn­um, Kín­verj­um, Ítölum og Spán­verjum mest. Þessar sex þjóðir voru með um helm­ing af fjölgun ferða­manna í ágúst.

Tví­vegis álíka fjölgun í ágúst



Ferða­menn voru ríf­lega þrisvar sinnum fleiri í ágúst í ár en þeir mæld­ust í sama mán­uði árið 2002, þegar taln­ingar Ferða­mála­stofu hófust. Fjölgun hefur verið öll ár á þessu tíma­bili, að árinu 2010 frá­töldu, og tví­vegis hefur þeim fjölgað álíka á milli ára en nú, þ.e. í ágúst 2003 og 2007. Sex sinnum á þessu tíma­bili hefur fjölg­unin verið yfir 10% á milli ára.

Þegar ein­stök mark­aðs­svæði eru skoðuð má sjá góða fjölgun frá öllum svæð­um. Banda­ríkja­mönnum hefur fjölgað mest en þeir hafa hátt í þre­fald­ast. Bretar og þeir sem taldir eru sam­eig­in­lega undir „Ann­að“ hafa u.þ.b. tvö­fald­ast. Líkt og und­an­farin ár eru ferða­menn frá Mið- og Suður Evr­ópu fjöl­menn­astir í ágúst og þeim hefur fjölgað um 50% frá 2010. Norð­ur­landa­búum hefur fjölgað sínu minnst frá frá árinu 2010, eða um 17%.

546 þús­und ferða­menn frá ára­mótum



Það sem af er ári hafa tæp­lega 700 þús­und farið frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­vell, nánar til­tekið 699.810 eða um 133 þús­und fleiri en á sama tíma­bili í fyrra. Um er að ræða 23,5% aukn­ingu ferða­manna milli ára frá ára­mótum í sam­an­burði við sama tíma­bil í fyrra. Veru­leg aukn­ing hefur verið frá flestum mörk­uð­um; N-Am­er­ík­önum og Bretum hefur fjölgað mest, hvorum um sig um u.þ.b. 35%, Mið- og S-Evr­ópu­búum um 15%, og ferða­mönnum frá öðrum mörk­uðum um 30%. Norð­ur­landa­búum hefur hins vegar ekki fjölgað í sama mæli eða um 8,6%.

Ferðir Íslend­inga utan



Um 37 þús­und Íslend­ingar fóru utan í ágúst síð­ast­liðn­um, nokkru færri en í júlí og nán­ast jafn margir og í ágúst í fyrra. Frá ára­mótum hafa 261 þús­und Íslend­ingar farið utan eða 8,7% fleiri en á sama tíma­bili árið 2013."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None