Flugið nær fyrri styrk

Júlí var metmánuður í farþegaflutningum hjá Play og Icelandair þokast nær þeim farþegatölum sem sáust fyrir kórónuveirufaraldur. Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll var meiri í júlí síðastliðnum en í sama mánuði árið 2019.

Fleiri farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí síðastliðinum en í sama mánuði árið 2019.
Fleiri farþegar fóru um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júlí síðastliðinum en í sama mánuði árið 2019.
Auglýsing

Flug­fé­lagið Play Air hefur aldrei flutt jafn marga far­þega og í síð­asta mán­uði en fjöld­inn nam 110 þús­undum í mán­uð­in­um. Fjöldi far­þega sem flogið hafa með flug­fé­lag­inu hefur vaxið í hverjum mán­uði það sem af er ári en í júní flugu 88 þús­und með Play. Flug­fé­lagið tók sína sjöttu þotu í notkun í síð­asta mán­uði en í flota félags­ins eru nú þrjár Air­bus A321­neo og þrjár Air­bus A320­neo vélar í rekstri. Stefnt er að því að bæta fjórum þotum í flota félags­ins í vetur sem mun færa fjölda Air­bus þota í flota félags­ins upp í tíu vorið 2023.

Flug­fé­lagið tók til starfa í júlí á síð­asta ári og flutti sam­tals um rúm­lega 101 þús­und far­þega á fyrstu sex starfs­mán­uðum félags­ins. Því flugu fleiri með hinu nýja flug­fé­lagi í síð­asta mán­uði heldur en á síð­asta ári. Á síð­asta ári var sæta­nýt­ing Play rúm 53 pró­sent en sæta­nýt­ing félags­ins hefur vaxið jafnt og þétt á þessu ári. Í júlí var sæta­nýt­ingin 88 pró­sent, sam­an­borið við 79 pró­sent í júní, og hefur hún aldrei verið eins góð.

Icelandair nálg­ast sömu umsvif og fyrir far­aldur

Sæta­nýt­ing Icelandair var einnig góð í júlí, 89 pró­sent. Í til­kynn­ingu frá Icelandair kemur fram að hún hafi aldrei verið hærri í júlí­mán­uði. Í mán­uð­inum flutti Icelandair 504 þús­und far­þega í milli­landa­flugi og er það í fyrsta sinn frá því í fyrir kór­ónu­veiru­far­aldur sem far­þega­fjöldi félags­ins í einum mán­uði fer yfir hálfa millj­ón. Fjöldi far­þega í milli­landa­flugi í júní var 407 þús­und.

Auglýsing

Icelandair kemst þar af leið­andi nálægt því að ná sömu far­þega­tölum og fyrir far­aldur en far­þega­fjöld­inn í júlí síð­ast­liðnum var 89 pró­sent af því sem hann var í sama mán­uði árið 2019. Í júlí á síð­asta ári flutti flug­fé­lagið aftur á móti 195 þús­und far­þega í milli­landa­flugi.

Í til­kynn­ingu frá Icelandair er haft eftir Boga Nils Boga­syni for­stjóra að góð sæta­nýt­ing sé eft­ir­tekt­ar­verð. „Eft­ir­spurn er og hefur verið mikil og ljóst er að mikil upp­söfnuð ferða­þörf er til stað­ar,“ segir Bogi Nils.

Fram­kvæmdir við nýja aust­ur­álmu standa yfir á Kefla­vík­ur­flug­velli

Nýjar far­þega­tölur frá Kefla­vík­ur­flug­velli, gefnar út af Isa­via, sýna einnig fram á bata í ferða­þjón­ust­unni. Í júlí síð­ast­liðnum fóru rúm­lega 852 þús­und far­þegar um flug­völl­inn og voru það fleiri far­þegar en fóru um flug­völl­inn í sama mán­uði árið 2019.

Framkvæmdir við austurálmu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar standa nú yfir. Hún mun líta svona út. Mynd: Isavia

Í til­kynn­ingu Isa­via er haft eftir Guð­mundi Daða Rún­ars­syni að nú sé mik­il­vægt að halda áfram þeirri góðu vinnu sem unnin hafi verið í upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli til að mæta eft­ir­spurn­inni sem fari vax­andi.

„Fram­kvæmdir hafa staðið yfir á Kefla­vík­ur­flug­velli meðal ann­ars vegna bygg­ingu 1200 metra akbrautar fyrir flug­vélar og bygg­ingar á nýrri aust­ur­álmu sem er rúm­lega 20.000 fer­metrar að stærð sem mun bæta upp­lifun far­þega og flug­fé­laga frá 2024. Á sama tíma hafa bæði Icelandair og Play til­kynnt stækkun flug­flota á næstu miss­erum og því mikil þörf á að fram­kvæmdir á flug­vell­inum haldi áfram,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent