Jakob Ásmundsson mun láta af störfum sem forstjóri Straums fjárfestingarbanka eftir að sameiningarferli við MP banka lýkur. Samkomulag hefur verið gert um starfslok hans en hann hefur starfað hjá bankanum í tíu ár, fyrst sem framkvæmdastjóri og síðustu tvö ár sem forstjóri.
„Ég tók á sínum tíma þátt í stofnun Straums og hef upplifað bæði súra tíma og sæta með bankanum,“ segir Jakob í tilkynningu sem send var fjölmiðlum. „Ég hef lengi verið sannfærður um að eðlilegt væri að styrkja stöðu bankans með ytri vexti. Kaup Straums á ráðandi hlut í Íslenskum verðbréfum og stórum hlut í MP banka voru liður í undirbúningi þess samruna sem nú er framundan. Sameinaður banki mun hafa mikið afl, meðal annars vegna sterkrar stöðu ÍV á eignastýringarmarkaði. Fyrir vikið tel ég fjölmörg sóknarfæri framundan. Hins vegar hef ég frá upphafi talið það betra að hafa einn forstjóra í stafni bankans en ekki tvo. Þess vegna kýs ég að stíga til hliðar á þessum tímamótum og óska ég bæði samstarfsfólki mínu í Straumi og starfsfólki og stjórn sameinaðs banka alls hins besta.“
Til stóð að Sigurður Atli Jónsson, forstjóri MP banka, og Jakob myndu í sameiningu stýra sameinuðum banka. Stefnt er að því að nýr banki taki til starfa í haust undir nýju nafni. Hluthafar bankanna munu kjósa um samrunann þann 22. júní næstkomandi en Samkeppniseftirlitið hefur þegar heimilað samruna bankanna tveggja.