Framsókn býður Samfylkingu, Pírötum og Viðreisn til viðræðna um myndun meirihluta

Bandalag þriggja flokka mun ræða við Framsókn um myndun meirihluta í Reykjavík sem myndi hafa 13 af 23 borgarfulltrúum á bakvið sig. Boðað hefur verið til blaðamannafundar klukkan 11 til að svara spurningum fjölmiðla um málið.

Einar Þorsteinsson og Þordís Lóa Þórhallsdóttir leiða tvö af þeim fjórum framboðum sem munu ræða saman um myndun meirihluta.
Einar Þorsteinsson og Þordís Lóa Þórhallsdóttir leiða tvö af þeim fjórum framboðum sem munu ræða saman um myndun meirihluta.
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur boðið Sam­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn til form­legra við­ræðna um myndun meiri­hluta í Borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur­. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem Einar Þor­steins­son, odd­viti flokks­ins, sendi frá sér rétt í þessu. Þar er auk þess boðað til blaða­manna­fundar í Grósku kl. 11:00 í dag þar sem odd­vitar flokk­anna verða til­búnir að svara spurn­ingum fjöl­miðla. 

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti Við­reisn­ar, gaf út til­kynn­ingu á sunnu­dag þar sem hún sagði það alveg kýrt að flokkur hennar sé í banda­lagi með Pírötum og Sam­­­fylk­ing­unni hvað varðar meiri­hluta­við­ræður í kjöl­far borg­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ing­anna og að flokk­­­ur­inn ætli ekki að leita ann­að. Banda­lagið sé aug­­­ljós kostur þegar mál­efna­á­herslur Við­reisnar í kosn­­inga­bar­átt­unni séu skoð­að­­­ar, sér­­­stak­­­lega hvað varðar skipu­lags-, sam­­göngu- og lofts­lags­­­mál. Við­reisn vilji láta reyna á að banda­lagið hefji meiri­hluta­við­ræður við Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn, en slíkur meiri­hluti hefði tæp­­lega 56 pró­­sent atkvæða á bak­við sig og 13 af 23 borg­­ar­­full­­trú­­um. 

Í Morg­un­út­­varpi Rásar 2 í gær­morgun bætti Þór­­dís Lóa við að þótt meiri­hlut­inn hafi fallið í síð­­­ustu kosn­­ing­um, mætti segja að minn­i­hlut­inn hafi líka gert það. Stjórn­­­ar­­flokk­­arnir hafi tapað tveimur mönnum en stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­arnir þrem­­ur. „Það er ekki verið að kjósa þá, þeir falla meira en meiri­hlut­inn og þegar við tökum þetta inn þá hugsa ég; hvað er það sem að borg­­ar­­búar voru að kjósa? Þeir voru að kjósa nýtt afl sann­­ar­­lega en þeir voru að kjósa eftir stórum lín­­um.“

Einar Þor­­steins­­son boð­aði bak­land sitt á fund í gær­kvöldi þar sem það sem virð­ist vera eini mög­u­­leik­inn í stöð­unni sem stend­ur var rædd­ur: meiri­hluti með Sam­­fylk­ingu, Pírötum og Við­reisn­­. Heim­ildir Kjarn­ans herma að Fram­sókn muni gera þá kröfu að Einar verði borg­ar­stjóri allt kjör­tíma­bilið ef af sam­starf­inu verði.

Sagði „þrjósku­banda­lag“ stunda klækja­stjórn­mál

Hildur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins í Reykja­vík, brást við tíð­ind­unum í gær með því að setja stöðu­upp­færslu á Face­book. Þar sagði hún að það sem komið hafi upp úr kjör­köss­unum í kosn­­ing­unum fyrir rúmri viku síðan hafi verið skýrt ákall á breytt stjórn­­­mál. Að hennar mati voru nið­­ur­­stöð­­urnar skýr­­ar. Sitj­andi meiri­hluti féll og þeir flokkar sem stóðu utan hans fengu nálægt 60 pró­­sent atkvæða. 

Auglýsing
Þetta telur Hildur hafa verið ákall kjós­­enda eftir breyt­ingum og að þeir hafi söm­u­­leiðis verið að hafna klækja­­stjórn­­­málum úr Ráð­­húsi Reykja­vík­­­ur.  „Ná­­kvæm­­lega sömu klækja­­stjórn­­­málum og þrjósku­­banda­lag Sam­­fylk­ing­­ar, Við­reisnar og Pírata beitir nú við meiri­hluta­við­ræð­­ur. Banda­lagið þráskall­­ast við að halda völdum sem kjós­­endur vilja ekki fela þeim lengur – með úti­­lok­unum og þving­un­­um. Það getur tæp­­lega talist upp­­taktur að far­­sælu sam­­starfi fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn.“

Án Við­reisnar á Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ekki leið í meiri­hluta en Sam­­fylk­ing­in, Píratar og Sós­í­a­lista­­flokk­­ur­inn hafa allir úti­­lokað sam­­starf við flokk­inn og Vinstri græn hafa gefið það út að þau muni ekki setj­­­ast í meiri­hluta eftir að hafa beðið afhroð í síð­­­ustu kosn­­ing­­um. Án Við­reisnar getur Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn ein­ungis náð ell­efu borg­­ar­­full­­trúum með sam­­starfi við Fram­­sókn og Flokk fólks­ins, sem dugir ekki í meiri­hluta. 

Hildur er þó ekki sam­­mála því mati Ein­ars Þor­steins­sonar að Fram­sókn standi ein­ungis frammi fyrir einum mögu­leika. Í stöð­u­­upp­­­færslu sinni sagði hún að það þurfi eng­inn að und­ir­­gang­­ast þær þving­­anir sem banda­lagið bjóði upp á að hennar mati. „Það eru margir mög­u­­leikar á borð­inu við myndun meiri­hluta. Ekki síst ef flokk­­arnir velja að svara ákalli kjós­­enda eftir mál­efna­­legum stjórn­­­málum og auk­inni sam­vinnu um mik­il­væg fram­fara­­mál. Sjálf­­stæð­is­­flokk­­ur­inn er reið­u­­bú­inn til sam­tals við alla flokka um verk­efni næsta kjör­­tíma­bils. Við gengum óbundin til kosn­­inga, boð­uðum breyt­ingar og vorum heið­­ar­­leg gagn­vart okkar kjós­­end­­um. Nú reynir á Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn – og auð­vitað alla flokka innan borg­­ar­­stjórnar - að hafa hug­rekkið til að svara kröfu kjós­­enda um breytt stjórn­­­mál.“

Einar sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær­kvöldi að hann skildi vel að Hildur væri súr yfir því að nokkrir flokkar hefðu úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. „Hún þarf kannski bara að horfast í augu við það og finna út úr því hvers vegna það er.“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent