Framsókn og Vinstri græn hafa tapað um átta prósentustigum af fylgi frá síðustu kosningum

Eini stjórnarflokkurinn sem tapar ekki fylgi frá kosningum er Sjálfstæðisflokkurinn. Ríkisstjórnin næði ekki meirihluta á þingi ef kosið yrði í dag. Samfylkingin hefur bætt langmestu fylgi við sig og er næst stærsti flokkur landsins.

Það er sennilega ekki gleði með stöðu mála í könnunum hjá formönnum Framsóknarflokksins og Vinstri grænna um þessar mundir.
Það er sennilega ekki gleði með stöðu mála í könnunum hjá formönnum Framsóknarflokksins og Vinstri grænna um þessar mundir.
Auglýsing

Rúmir þrettán mán­uðir eru liðnir frá síð­ustu kosn­ing­um. Sam­kvæmt nýj­ustu könnun Gallup hafa rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír tapað alls 7,7 pró­sentu­stigum af fylg­i.  Mest hafa Vinstri græn, flokkur Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, tapað eða 4,2 pró­sentu­stig­um. Fylgi þess flokks mælist nú 8,4 pró­sent sem gerir hann, ásamt Við­reisn, að fimmta til sjötta stærsta flokknum á þingi.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem bætti miklu við sig í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra, hefur einnig fallið nokkuð skarpt það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Flokk­ur­inn fékk 17,3 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra­haust og bætti þá við sig 6,6 pró­sentu­stigum milli kosn­inga. Eng­inn annar flokkur bætti við sig meiru en 1,9 pró­sentu­stigi, ef frá er tal­inn Sós­í­alista­flokkur Íslands sem var að bjóða fram í fyrsta sinn og fékk 4,1 pró­sent atkvæða. Gott gengi flokks­ins hélt áfram í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum í vor sem skil­aði honum meðal ann­ars inn í meiri­hluta í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur.

Auglýsing
Nú er Fram­sókn að mæl­ast með 13,8 pró­sent fylgi og flokk­ur­inn er ansi langt frá því að vera sá næst stærsti í land­inu, líkt og hann var eftir síð­ustu kosn­ing­ar.

Eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem hefur engu fylgi tapað á kjör­tíma­bil­inu er Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem mælist með nákvæm­lega sama fylgi og hann fékk upp úr kjör­köss­unum fyrir þrettán mán­uð­um, eða 24,4 pró­sent. Það er þó næst minnsta fylgi sem flokk­ur­inn hefur fengið frá upp­hafi í þing­kosn­ing­unum og í þeim for­manns­slag Bjarna Bene­dikts­sonar og Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar sem nú stendur yfir í aðdrag­anda lands­fundar Sjálf­stæð­is­flokks, sem fer fram um næstu helgi, hefur fylgið verið gert að helsta ásteyt­ing­ar­stein­in­um. Guð­laugur Þór segir það allt of lítið og beri þess merki að flokk­ur­inn nái ekki lengur til verka­stétta sem kusu hann einu sinni. Bjarni segir að horfa þurfi til þess að flokk­ur­inn sé enn sá stærsti í afar breyttu póli­tísku lands­lagi, kom­ist þrátt fyrir allt alltaf í rík­is­stjórn og tryggi sér þannig áhrif.

Sam­an­lagt fylgi rík­is­stjórn­ar­flokk­anna mælist 46,6 pró­sent og sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup fyrir októ­ber­mánuð myndi það, í ljósi þess að flokk­arnir á þingi yrðu níu ef kosið yrði í dag, ein­ungis skila þeim 30 þing­mönn­um, eða sex færri en hún hefur nú. Alls 32 þarf til að mynda meiri­hluta og því mælist rík­is­stjórnin fallin eins og er. 

Sam­fylk­ingin tekið til sín þorra þess sem stjórnin hefur tapað

Sá flokkur sem hefur bætt lang­mestu fylgi við sig á kjör­tíma­bil­inu sam­kvæmt könn­unum er Sam­fylk­ing­in, en hún kaus Kristrúnu Frosta­dóttur sem nýjan for­mann um síð­ustu helgi og skipti raunar út allri for­ystu sinni á lands­fundi. Alls mælist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar nú 16,6 pró­sent, sem er 6,7 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber. Fylgið hefur ekki mælst hærra síðan í byrjun árs 2021 og flokk­ur­inn hefur nú mælst sá næst stærsti í land­inu í þrjá mán­uði í röð. Þessi fylg­is­aukn­ing, og það að níu flokkar næðu inn, myndi skila Sam­fylk­ing­unni fimm fleiri þing­mönnum en hún er með í dag, eða ell­efu tals­ins.

Píratar hafa einnig bætt umtals­verðu við sig, eða 4,3 pró­sentu­stig­um, og mæl­ast með 12,9 pró­sent fylgi. Þing­mönnum flokks­ins myndi fjölga úr sex í átta yrði þetta nið­ur­staða kosn­inga.

Auglýsing
Sósíalistaflokkurinn hefur sömu­leiðis þok­ast upp á við og mælist nú með fimm pró­sent stuðn­ing, sem er 0,9 pró­sentu­stigum meira en hann fékk í kosn­ing­unum í fyrra. Þessi fylg­is­aukn­ing myndi að öllum lík­indum duga til að flokk­ur­inn fengi þrjá þing­menn, en hann hefur engan í dag. 

Við­reisn stendur nán­ast í stað frá kosn­ing­un­um, mælist með 8,4 pró­sent sem er 0,1 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra­haust. Þing­manna­fjöld­inn myndi verða óbreytt­ur, eða fimm. 

Flokkur fólks­ins tapað næst mest allra

Tveir flokkar í stjórn­ar­and­stöðu hafa verið að tapa fylgi. Þar ber fyrst að nefna Flokk fólks­ins, sem hefur gengið í gegnum allskyns inn­an­mein það sem af er kjör­tíma­bili. Flokkur Ingu Sæland fékk 8,9 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum í fyrra en mælist nú ein­ungis með 5,3 pró­sent stuðn­ing. Ein­ungis Vinstri græn hafa tapað meira fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­i. 

Mið­flokkur Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar mælist nú með slétt fimm pró­sent fylgi, sem er 0,5 pró­sentu­stigum undir kjör­fylgi. Það myndi þó mögu­lega skila honum fleiri þing­mönnum en þing­flokk­ur­inn telur í dag, en auk for­manns­ins er ein­ungis Berg­þór Óla­son þar að finna. Það skýrist þó af því að Birgir Þór­ar­ins­son, sem kjör­inn var á þing fyrir Mið­flokk­inn í fyrra­haust, ákvað að skipta yfir í Sjálf­stæð­is­flokk­inn nokkrum vikum eftir kosn­ing­ar. 

Könn­unin var gerð dag­anna 3. til 31. októ­ber 2022. Heild­ar­úr­taks­stærð var 8.267 og svar­hlut­fallið 49,9 pró­sent. Vik­mörk á fylgi flokka eru 0,8 til 1,5 pró­sentu­stig.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent