Framsóknarflokkurinn hefur ekki mælst stærri í rúm tvö ár

Framsókn hefur aukið fylgi sitt um 67 prósent frá því í byrjun desember í könnunum MMR. Á sama tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn tapað 22,5 prósent af fylgi sínu.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, getur brosað yfir stöðu flokksins í könnun MMR.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, getur brosað yfir stöðu flokksins í könnun MMR.
Auglýsing

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist nú með 12,7 pró­sent fylgi og hefur ekki mælst stærri í rúm tvö ár í könn­unum MMR. Hann hefur enn fremur ein­ungis einu sinni mælst með meira fylgi á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili, í febr­úar 2019 skömmu eftir Klaust­urs­málið svo­kall­aða þegar fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins mæld­ist 13,5 pró­sent. Frá því í byrjun des­em­ber hefur flokk­ur­inn aukið fylgi sitt um 67 pró­sent, úr 7,6 pró­sentu­stigum í 12,7 pró­sent. Fylgið jókst um 1,3 pró­sentu­stig milli mán­aða.

Hinir tveir stjórn­ar­flokk­arnir dala á milli mán­aða í könnun MMR. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist nú með 21 pró­sent fylgi og Vinstri græn með 11,7 pró­sent fylgi. Fyrr­nefndi flokk­ur­inn hefur tapað 6,1 pró­sentu­stigi í könn­unum MMR frá því í byrjun des­em­ber 2020, sem þýðir að fylgi hans hefur dreg­ist saman um 22,5 pró­sent. Síð­ar­nefndi flokk­ur­inn tapar 1,8 pró­sentu­stigum milli mán­aða og yrði fjórði stærsti flokk­ur­inn á þingi ef nið­ur­staða nýj­ustu könn­unar MMR kæmi upp úr kjör­köss­un­um. Vinstri græn voru næst stærsti flokkur lands­ins eftir síð­ustu þing­kosn­ing­ar.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er enn fremur eini stjórn­ar­flokk­ur­inn sem mælist yfir kjör­fylgi en sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist nú 45,4 pró­sent. Þeir fengu alls 52,8 pró­sent atkvæða haustið 2017.

Auglýsing
Samfylkingin bætir lít­il­lega við sig á milli mán­aða og mælist nú með 13,8 pró­sent fylgi. Það myndi gera flokk­inn að næst stærsta flokknum á þingi ef það yrði nið­ur­staða kosn­inga. Píratar sigla nokkuð lygnan og stöðugan sjó með 11,5 pró­sent fylgi og Við­reisn mælist með tíu pró­sent fylgi. Allir þessir þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast yfir kjör­fylgi og myndu sam­an­lagt fá 35,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könnun MMR. Þeir fengu 28 pró­sent í októ­ber 2017.

Mið­flokk­ur­inn hress­ist milli mán­aða og nálg­ast kjör­fylgi sitt. Hann mælist nú með 9,3 pró­sent stuðn­ing. Flokkur fólks­ins bætir líka við sig fylgi frá því í febr­úar og mælist nú með 5,1 pró­sent stuðn­ing. Sós­í­alista­flokk­ur­inn rekur svo lest­ina af þeim níu flokkum sem mæl­ast í könn­unum MMR þessa stund­ina með 3,8 pró­sent fylg­i. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina dalar milli mán­aða og mælist nú 53,7 pró­sent. Könn­unin var fram­kvæmd 5. - 10. mars 2021 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 951 ein­stak­ling­ur, 18 ára og eldri.

Næst verður kosið til þings 25. sept­em­ber næst­kom­andi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent