Fylgi stjórnmálaflokka hreyfist lítið – Andstaðan enn langt frá því að ógna stjórninni

Stöðugleiki mælist í fylgi flokka og þær litlu breytingar sem urðu á því milli febrúar og mars breyta ekki miklu. Tveir stjórnarflokkar mælast rétt undir kjörfylgi en einn aðeins yfir því. Þrír stjórnarandstöðuflokkar mælast yfir kjörfylgi.

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur siglir nokkuð lygnan sjó samkvæmt nýjustu könnun Gallup og litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur siglir nokkuð lygnan sjó samkvæmt nýjustu könnun Gallup og litlar breytingar eru á fylgi flokka milli mánaða.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokkur og Vinstri græn bæta við sig smá­vægi­legu fylgi milli mán­aða sam­kvæmt þjóð­ar­púlsi Gallup, en aukn­ingin nær ekki heilu pró­sentu­stigi hjá hvor­ugum flokki. Báðir flokk­arnir mæl­ast undir kjör­fylgi, en fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist 22,7 pró­sent á meðan að 11,4 pró­sent lands­manna segja að þeir myndu kjósa Vinstri græna ef kosið yrði í dag.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn stendur í stað og mælist með 18 pró­sent stuðn­ing. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna þriggja mælist því 52,1 pró­sent en þeir fengu sam­tals 54,3 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021.

Auglýsing
Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar mæl­ast með meira fylgi en þeir fengu í síð­ustu kosn­ing­um. Mest hafa Píratar bætt við sig, 3,3 pró­sentu­stig­um, og þeir njóta nú stuðn­ings 11,9 pró­sent lands­manna. Fylgi þeirra dalar hins vegar um rúmt pró­sentu­stig milli mán­aða. Sam­fylk­ingin stendur nán­ast í stað frá síð­ustu könnun Gallup, og mælist 11,2 pró­sent. Það er aðeins meira en sá flokkur fékk í fyrra­haust þegar kosn­ing­arnar skil­uðu honum 9,9 pró­sent greiddra atkvæða. Við­reisn fékk 8,3 pró­sent í síð­ustu kosn­ingum en mælist nú með 9,1 pró­sent fylg­i. Þessir þrír flokkar mæl­ast nú sam­an­lagt með 32,2 pró­sent fylgi sem er 5,4 pró­sentu­stigum meira en þeir fengu upp úr kjör­köss­unum í fyrra.

Flokkur fólks­ins er rétt undir kjör­fylgi um þessar mundir með 8,2 pró­sent stuðn­ing en flokkur Ingu Sæland fékk 8,9 pró­sent atkvæða í síð­ustu kosn­ing­um. 

Minnsti flokk­ur­inn á þingi, Mið­flokk­ur­inn sem á tvo þing­menn, mælist með 3,7 pró­sent fylgi. Öll stjórn­ar­and­staðan nýtur því sam­an­lagt 44,1 pró­sent stuðn­ings lands­manna.

Auglýsing
Sósíalistaflokkurinn, sem náði ekki inn í fyrra­haust, mælist auk þess með 3,6 pró­sent fylg­i. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist 61 pró­sent og eykst um þrjú pró­sentu­stig milli mán­aða. Það sem af er kjör­tíma­bili hefur stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mest mælst 62,2 pró­sent, í fyrstu könnun Gallup sem gerð var eftir kosn­ing­ar.

Könn­unin var gerð á lands­vísu dag­ana 1. til 31. mars 2022. Heild­ar­úr­taks­stærð var 10.941 og þátt­töku­hlut­fall var 49,6 pró­sent. Vik­mök við fylgi flokka eru 0,5 til 1,2 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent