Fyrrum þingmaður í fangelsi í Noregi vegna fjárdráttar

Þingrétturinn í Osló dæmdi fyrrum þingmann norska Verkamannaflokksins í sjö mánaða fangelsi í dag, þar sem upp komst að hún hafði falsað reikninga til að fá endurgreiddan ferðakostnað frá þinginu.

Hege Haukeland Liadal, fyrrum þingmaður norska Verkamannaflokksins, við dómsuppkvaðninguna í morgun.
Hege Haukeland Liadal, fyrrum þingmaður norska Verkamannaflokksins, við dómsuppkvaðninguna í morgun.
Auglýsing

Hege Haukeland Liadal, fyrrum þing­maður norska Verka­manna­flokks­ins, var í dag dæmd í sjö mán­aða fang­elsi vegna fals­aðra ferða­reikn­inga. Alls fékk hún ferða­kostnað að and­virði 1,8 millj­óna íslenskra króna end­ur­greiddan frá norska Stór­þing­inu á tíma­bil­inu 2016 til 2018. Þetta kemur fram í fréttum NRK og VG um mál­ið.

Aften­posten afhjúpaði fjár­drátt Liadal fyrir rúmum tveimur árum síð­an, en þing­mað­ur­inn við­ur­kenndi þá að hún hafði fengið end­ur­greiddan pen­ing fyrir ferðir sem hún hafði aldrei far­ið. Í kjöl­farið til­kynnti norska Stór­þingið málið til lög­reglu, sem fór svo í gegnum 700 reikn­inga sem hún hafði lagt fram.

Af þessum reikn­ingum reynd­ist 61 þeirra vera fals­að­ir, sam­kvæmt dómi Þing­rétt­ar­ins í Osló, sem var kveð­inn upp í dag. Þar voru meðal ann­ars reikn­ingar fyrir ferðir á milli heima­bæjar hennar í Haugesund og Oslóar sem vega­lengdin á milli stað­anna tveggja var ofá­ætl­uð.

Auglýsing

Þar að auki greiddi þingið fyrir ferðir sem Liadal fór ekki og aðrar ferðir sem voru ótengdar störfum hennar sem þing­mað­ur. Sam­kvæmt NRK er þing­mann­inum gert að greiða tæpar tvær millj­ónir íslenskra króna í bæði sekt og máls­kostn­að, til við­bótar við fang­els­is­vist­ina.

Liadal við­ur­kennir að hafa van­rækt störf sín sem þing­maður með að falsa reikn­ing­ana sína, en segir þó að fals­an­irnar hafi ekki verið gerðar af ásettu ráði til að bæta eigin fjár­hags­stöðu. Hún segir líka að síð­ustu ár hafi verið henni þung­bær, þar sem málið hennar hefur verið til rann­sókn­ar. „Ég segi ekki að mér sé létt í dag, en ég geng héðan bein í baki,“ bætir hún við.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent