Stjórn Neytendasamtakanna hefur sent frá sér ályktun þar sem hún gagnrýnir harðlega hvernig staðið var að skipun starfshóps sem skoðar breytingu á stofnanaumgjörð samkeppnis- og neytendamála á Íslandi. „Óásættanlegt er að fulltrúi atvinnulífs fái sæti í nefndinni, en horft sé fram hjá neytendum líkt og samkeppnis- og neytendamál komi þeim ekki við. Stjórn Neytendasamtakanna gerir kröfu um sæti við borðið til að tryggja að raddir og sjónarmið neytenda komi fram.“
Starfshópurinn sem um ræðir var skipaður 24. ágúst síðastliðinn af Lilju D. Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptaráðherra. Í hann voru skipaðir þrír einstaklingar: Þorgeir Örlygsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, formaður, Angantýr Einarsson, framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs Vestmannaeyja, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Meginmarkmið hópsins, sem á að skila tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2023, er að finna leiðir til að styrkja samkeppni innanlands, tryggja stöðu neytenda betur í nýju umhverfi viðskipta og efla alþjóðlega samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Vakið undrun víðar
Kjarninn hefur rætt við ýmsa fleiri, meðal annars innan verkalýðshreyfingarinnar, sem undra sig sérstaklega á skipan Svanhildar í hópinn. Bæði vegna þess að fulltrúar neytenda eða launþega eiga þar engan fulltrúa og þess að Viðskiptaráð hefur verið afar gagnrýnið á starfsemi og umfang Samkeppniseftirlitsins á undanförnum árum.
Sögðu athugasemdir „aðför að upplýstri umræðu“
Hagsmunasamtökin brugðust illa við þessari tilkynningu. Samtök atvinnulífsins og Viðskiptaráð sendu í kjölfarið frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem þau sögðu athugasemdir Samkeppniseftirlitsins vera „aðför að upplýstri umræðu“.
Í umræðu út á við væri eðlilegt að þau ræði ýmis mál er tengjast félagsmönnum sínum og íslensku atvinnulífi í heild. „Þar má til dæmis nefna umræðu sem snýr að launakjörum, kvöðum stjórnvalda á borð við gjöld og leyfisveitingar, hrávöruverði og fleiri atriðum sem öll geta haft áhrif á almennt verðlag. Að benda á þá staðreynd að þróun varðandi fyrrgreind atriði geti leitt til verðhækkana felur hvorki í sér brot á samkeppnislögum né hvetur það til þeirra. Í raun er óumflýjanlegt að hagsmunasamtök fyrirtækja láti sig verðlag í landinu varða þegar ýmsar kvaðir sem stjórnvöld setja hafa áhrif á verðlag á þeim vörum og þjónustu sem félagsmenn þeirra bjóða upp á.“
Engin ákvæði samkeppnislaga banni samtökum fyrirtækja þátttöku í opinberri umræðu. „Það er mat SA og VÍ að með aðfinnslum sínum sé Samkeppniseftirlitið komið langt út fyrir lögbundið hlutverk sitt. Hversu langt má ganga? Hverjir mega tjá sig? Verða settar skorður á Seðlabankann að tjá sig um verðlag í landinu? Eða greiningaraðila, t.d. innan viðskiptabankanna? Mega hagsmunasamtök fyrirtækja tjá sig um vaxtahækkanir?“