Gervigreind í stað mannlegra sálfræðinga

gervigreind.jpg
Auglýsing

Fjóla Dögg Helga­dóttir hefur skrifað tölvu­for­rit sem hjálpar fólki við að greina og vinna úr sál­rænum vanda­mál­um. Fjóla rann­sak­aði klíníska sál­fræði við Oxfor­d-há­skóla í Bret­landi og hún segir tölvur geta verið gagn­lega sál­fræð­inga. „Ég held að í ein­hverjum til­vikum þá geti tölvu­með­ferð gengið vel án þess að mennskur sál­fræð­ingur taki þátt. Fólk er á margan hátt ekki góðir sál­fræð­ing­ar.“

Önnur íslensk kona hefur und­an­farin ár notað gervi­greind­ar­for­rit Fjólu til með­ferðar á sjálfri sér. Saga hennar er rakin í sér­stakri gervi­greind­ar­út­gáfu vís­inda­tíma­rits­ins Sci­ence. Eftir að hafa flutt til Bret­lands fór [ís­lenska kon­an] ­skyndi­lega að líða illa meðal fólks. Það hafði aldrei verið vanda­mál áður. „Mér leið eins og ég væri að missa tök­in,“ segir hún.

[Ís­lenska kon­an] kynnt­ist svo Fjólu í Oxford árið 2012 og próf­aði for­ritið sem kall­ast AI ther­apy. Fyrstu dag­ana spyr for­ritið spurn­inga áður en grein­ing fannst á vanda­mál­inu og með­ferð gat haf­ist. For­ritið greindi [ís­lensku kon­una] með félags­kvíða og þving­aði hana til að glíma við líðan sína og hugs­an­ir.

Auglýsing

For­rit Fjólu er hins vegar ekki eina tölvu­með­ferð­ar­for­ritið sem til er. Fyrsta slíka for­ritið var raunar skrifað á sjö­unda ára­tugnum og notað til að rann­saka sam­skipti milli manns og tölvu. Síðan þá hafa orðið miklar fram­farir í þessum efnum og full­komin for­rit geta nú greint og lagt til með­ferð við and­legum kvill­um.

Vís­inda­menn telja þessi tæki vera gagn­leg fyrir sál­fræð­inga. Fjóla segir í sam­tali við Sci­ence að tölvur geti verið betri ranna­k­andi og hlut­læg­ari í grein­ingu sinni. Reynsla [ís­lensku kon­unn­ar] bendir til að tæki eins og AI ther­apy ­geti, án þess að mann­eskja komi við sögu, skipt sköp­um. „Ég gat breytt þessu sjálf,“ segir [ís­lenska kon­an] en hún telur mann­legan sál­fræð­ing alveg hafa getað hjálpað sér líka.

Ferlið sem [ís­lenska kon­an] ­fór í gegnum er rang­lega nefnt CBTp­sych í grein Sci­ence. Rétt er að það heitir AI ther­apy. Það hefur verið leið­rétt hér.

Upp­fært 20. júlí, kl. 12:40 - Að ósk við­mæl­enda Sci­ence hefur nafn íslensku kon­unnar sem próf­aði bún­að­inn verið tekið út og í stað­inn sett [ís­lenska kon­an] þar sem við á.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None