Gísli Freyr Valdórsson, fyrrum aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra, ræddi Tony Omos í síðara samtali sínu við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, þáverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, þann 20. nóvember 2013. Fyrr í dag sagði Gísli Freyr við Kjarnann að þau hefðu ekki rætt um hælisleitandann Tony Omos.
Gísli Freyr segir í samtali við Kjarnann að eftir að hafa farið betur yfir málið, og litið í minnisbók sína, hafi það rifjast upp fyrir honum að fyrri staðhæfing hans um innihald samtalsins sé ekki rétt. Hann hafi spurt Sigríði út í Tony Omos og hvort rannsókn á máli hans væri lokið.
Gísli Freyr hringdi tvívegis í Sigríði að morgni 20. nóvember. Annað símtalið var klukkan 9:41 og hið síðara klukkan 9:56. Gísli Freyr segist hafa spurt út í Omos í síðara símtalinu. Hann segir Sigríði ekki hafa hringt í sig þennan morgun.
Gísli Freyr Valdórsson var dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að leka minnisblaði um Tony Omos.
Samtölin sama dag og fréttir birtust
Sama dag og Gísli ræddi við Sigríði Björk birtu Fréttablaðið og mbl.is fréttir sem byggðu á minnisblaði um hælisleitandann Tony Omos sem Gísli Freyr hefur viðurkennt að hafa lekið til fjölmiðlanna. Að sögn Gísla áttu símtölin við Sigríði Björk sér stað eftir að Fréttablaðið birti sína frétt um málið en áður en mbl.is birti sína frétt.
Báðir fjölmiðlarnir voru hins vegar þegar búnir að fá minnisblaðið í sínar hendur þegar símtölin áttu sér stað.
Er nú lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Sigríður Björk var á þessum tíma lögreglustjóri á Suðurnesjum. Hún var skipuð í starf lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins af Hönnu Birnu í júlí síðastliðnum án auglýsingar í kjölfar þess að fyrirrennari hennar, Stefán Eiríksson, sagði starfi sínu lausu. Í aðdraganda uppsagnar Stefáns hafði hann orðið fyrir ítrekuðum afskiptum af hendi innanríkisráðherra vegna rannsóknar á lekamálinu. Umboðsmaður Alþingis hefur haft samskipti Hönnu Birnu og Stefáns til skoðunar og er von á áliti hans um þau í þessari viku.
Gísli Freyr hefur játað að hafa lekið minnisblaði með upplýsingum um Tony Omos til Fréttablaðsins og mbl.is sem birtust í miðlunum þennan saman dag, 20. nóvember. Áður en minnisblaðinu var lekið var búið að bæta upplýsingum við það um Omos. Gísli Freyr var í síðustu viku dæmdur í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir lekann.