Goðsögnin Ronaldo vill snúa aftur í fótboltann

Ronaldo.jpg
Auglýsing

Brasil­íska goð­sögnin Ron­aldo, sem í þrí­gang var val­inn knatt­spyrnu­maður árs­ins í heim­inum hjá FIFA, þar á meðal í tvígang áður en hann náði tuttug­asta og öðru ald­ursári, hefur hug á því að snúa aftur í atvinnu­manna­fót­bolta með Fort Lauder­dale Stri­k­ers (FLS), í Norð­ur­-Am­er­íku deild­inni NASL. Í við­tali við vef FLS, sem vef­síðan 101gr­eat­goals.com vitnar til, seg­ist Ron­aldo ætla að æfa meira á þessu ári en hann hefur gert á síð­ustu árum. „Ég hef verið svo upp­tek­inn við að gera annað und­an­farin ár, en ég ætla að æfa meira á þessu ári[...]Ég mun reyna að spila ein­hverja leik­i,“ segir goð­sögn­in.

Ron­aldo er sjálfur eig­andi að 10 pró­sent hlut í félag­inu, og hefur stutt mynd­ar­lega við mark­aðs­starf félags­ins að und­an­förnu. Hann stendur meðal ann­ars fyrir degi sem til­eink­aður er aðdá­endum FLS, hinn 17. jan­úar næst­kom­andi.

Ron­aldo er almennt álit­inn einn allra besti fram­herji sög­unn­ar, en hann er næst marka­hæsti leik­maður í sögu úrslita­keppni HM á eftir Þjóð­verj­anum Miroslav Klose, með 15 mörk. Meiðsli settu strik í reikn­ing­inn á mögn­uðum ferli hans, og þurfti hann meðal ann­ars í þrí­gang að vera frá í meira en árslangan tíma sökum alvar­legra hné­meiðsla. Á árunum 2000 til 2002 var hann frá keppni í tæp­lega tvö ár, en snéri aftur fyrir HM 2002 í Japan og Suð­ur­-Kóreu og end­aði sem marka­hæsti leik­maður keppn­innar með átta mörk og heims­meist­ari með sterku liði Bras­il­íu.

Auglýsing

Hann er fæddur 1976, og var kjör­inn leik­maður árs­ins hjá FIFA árin 1996 og 1997, en hann var þá leik­maður Barcelona og Inter á Ítal­íu. Hann var einnig val­inn leik­maður árs­ins hjá FIFA árið 2002. Ron­aldo skor­aði 62 mörk í 98 lands­­leikj­um fyr­ir Bras­il­íu og varð heims­­meist­­ari með lið­inu 1994 og 2002. Fer­il­inn í Evr­­ópu hóf hann hjá PSV Eind­ho­ven, á sama tíma og Eiður Smári Guðjohn­sen lék með lið­inu, og lék síðan með Barcelona, In­ter Mílanó, Real Madrid, AC Mil­an og Cor­in­t­hi­ans. Hann hætti að leika sem atvinnu­maður árið 2011.

Ron­aldo lék sinn fyrsta lands­leik í æfinga­leik með Bras­ilíu gegn Íslend­ingum árið 1994. Óhætt er að segja að hann hafi reynst íslenska lið­inu erf­ið­ur.

https://www.youtu­be.com/watch?v=of­fjaRa­br40

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None