Greiðslur til allra bankastjóra stærstu bankanna jukust í fyrra

Bankastjóri Íslandsbanka fékk sérstaka yfirvinnugreiðslu vegna undirbúnings fyrir skráningu á markað. Bankastjóri Arion banka fékk myndarlega bónusgreiðslu. Bankastjóri Landsbankans fékk hefðbundna launahækkun.

Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Bankastjórar þriggja stærstu banka landsins.
Auglýsing

Birna Ein­ars­dótt­ir, banka­stjóri Íslands­banka, fékk sam­tals 68,6 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,7 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Á árinu 2020 fékk hún 60,3 millj­ónir króna í laun eða um fimm millj­ónir króna á mán­uð­i. 

Mun­ur­inn á launum milli ára skýrist af sér­stakri 10,9 milljón króna greiðslu vegna yfir­vinnu sem Birna fékk í tengslum við und­ir­bún­ing hluta­fjár­út­boðs og skrán­ingar Íslands­banka á markað í fyrra­sum­ar. Án hennar hefðu hefðu heild­ar­laun Birnu lækkað um 2,6 millj­ónir króna milli ára. 

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Íslands­banka sem birtur var í gær. Íslenska ríkið er stærsti eig­andi bank­ans með 65 pró­sent eign­ar­hlut.

Fékk bón­us­greiðslu

Allir banka­stjórar stóru bank­anna fengu hærri greiðslur frá atvinnu­rek­anda sínum í fyrra en á árinu 2020. Bene­dikt Gísla­son, banka­stjóri Arion banka, var með 69,8 millj­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­sjóð í fyrra, eða 5,8 millj­ónir króna að með­al­tali á mán­uði. Arion banki hefur hins vegar inn­leitt kaupauka- og kaup­rétt­ar­kerfi sem umb­unar starfs­fólki umtals­vert. 

Auglýsing
Kaupaukakerfið gengur meðal ann­ars þannig fyrir sig að ef bank­inn nær því mark­miði að vera með meiri arð­semi en helstu sam­keppn­is­að­ilar sínar þá fá stjórn­­­­­­endur og það starfs­­­­­­fólk sem hefur hvað mest áhrif á tekjur og kostnað bank­ans allt að 25 pró­­­­­­sent af föstum árs­­­­­­launum í kaupauka­greiðslu, en í formi hluta­bréfa í bank­­­­­­anum sem verða ekki laus til ráð­­­­­­stöf­unar fyrr en að þremur árum liðn­­­­­­­­­­­um. Í til­­­felli Bene­dikts þýðir það kaupauka upp á 17,5 millj­­ónir króna en hann var með 69,8 millj­­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóð á síð­­asta ári. 

Sam­kvæmt kaup­rétt­ar­á­ætlun Arion banka geta allir fast­ráðnir starfs­menn keypt hluta­bréf í bank­anum fyrir 1,5 milljón króna einu sinni ári í fimm ár. Þau kaup fara fram á geng­inu 95,5 krón­ur, en mark­aðsvirði Arion banka er 98 pró­sent yfir því gengi í dag. Það þýðir að bréfin sem starfs­maður kaupir á 1,5 millj­ónir króna eru þriggja milljón króna virð­i. 

Arion banki er eini kerf­is­lega mik­il­vægi bank­inn sem íslenska ríkið á ekki hlut í. Stærstu eig­endur bank­ans eru íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Með 4,5 millj­ónir á mán­uði

Laun Lilju Bjarkar Ein­­ar­s­dótt­­ur, banka­­stjóra Lands­­bank­ans, hækk­­uðu um 3,2 millj­­ónir króna í fyrra og voru 45,4 millj­­ónir króna. Það þýðir að hún var með 3,8 millj­­ónir króna í mán­að­­ar­­laun að með­­al­tali sem er um 263 þús­und krónum hærri laun á mán­uði en hún hafði að með­­al­tali á mán­uði á árinu 2020. Laun hennar hækk­­uðu því um sjö pró­­sent milli ára.

Auk launa og hlunn­inda (sem í fel­­ast til að mynda afnot af bif­­reið í eigu bank­ans) fékk Lilja greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóð upp á 8,7 millj­­ónir króna, eða 725 þús­und krónur á mán­uði að með­­al­tali. Mót­fram­lags­greiðslur hennar hækk­­uðu um 8,8 pró­­sent milli ára.

Sam­tals fékk Lilja því 54,4 millj­­ónir króna í laun og mót­fram­lag í líf­eyr­is­­sjóðs á síð­­asta ári, eða rúm­­lega 4,5 millj­­ónir króna á mán­uði.

Lands­bank­inn er í eigu íslenska rík­is­ins.

Allir stóru bank­­arnir þrír hafa nú birt árs­­reikn­inga sína vegna árs­ins 2021. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á því ári var 81,2 millj­­arðar króna. Á árinu 2020 högn­uð­ust þeir um tæpa 30 millj­arða króna. Því var hagn­aður þeirra á síð­asta ári 170 pró­sent meiri en á árinu 2020.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent