Guðjón S. Brjánsson, þingmaður Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi, ætlar ekki að gefa kost á sér í flokksvali flokksins í kjördæminu, sem fram fer síðar í þessum mánuði.
Í yfirlýsingu frá Guðjóni segir að hugur hans hafi ekki lengur fylgt hjarta þegar kom að ákvarðanatöku um að gefa kost á sér að nýju.
„Mig langar að eyða meiri tíma með minni fjölskyldu og fylgjast með barnabörnunum dafna og þroskast sem ég hef ekki haft nægilegan tíma til að gera,“ segir Guðjón, sem verið hefur eini þingmaður Samfylkingarinnar í kjördæminu.
„Ég er þakklátur fyrir þann heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi fyrir hönd jafnaðarmanna og að hafa barist fyrir hagsmunum landsmanna allra á þingi. Ég þakka öllum mínum kjósendum í Norðvesturkjördæmi og samstarfsfélögum fyrir stuðninginn á liðnum árum,“ segir í yfirlýsingu Guðjóns.
Þingmaðurinn hefur setið sem 1. varaforseti Alþingis og starfað í allsherjar- og menntamálanefnd, velferðarnefnd og umhverfis- og samgöngunefnd ásamt því að hafa verið formaður Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins.