Guðlaugur Þór fékk ekki leyfi læknis til að ferðast á COP27

Matvælaráðherra tekur þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP27, í stað umhverfisráðherra sem stendur í formannsslag í Sjálfstæðisflokknum. Ráðherrann er fótbrotinn og fékk ekki leyfi læknis til að ferðast til Egyptalands.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verður ekki fulltrúi stjórnvalda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst á sunnudag, sama dag og formannskjör fer fram í Sjálfstæðisflokknum.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, verður ekki fulltrúi stjórnvalda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem hefst á sunnudag, sama dag og formannskjör fer fram í Sjálfstæðisflokknum.
Auglýsing

Tuttug­asti og sjö­undi aðild­ar­ríkja­fundur Lofts­lags­samn­ings Sam­ein­uðu þjóð­anna, COP27, hefst í Sharm El-S­heikh í Egypta­landi á sunnu­dag. Sama dag fer fram for­manns­kjör á lands­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, býður sig fram gegn Bjarna Bene­dikts­syni, sitj­andi for­manni.

Guð­laugur Þór mun ekki sækja ráð­stefn­una en Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, mat­væla­ráð­herra, fer fyrir hönd íslenskra stjórn­valda. Svan­dís mun ávarpa ráð­herra­fund og taka þátt í hlið­ar­við­burðum á ráð­stefn­unni.

Auglýsing

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá mat­væla­ráðu­neyt­inu stóð til að Guð­laugur Þór yrði við­staddur seinni viku lofts­lags­ráð­stefn­unnar og tæki þátt í við­burðum henni tengdri. „Ráð­herra fót­brotn­aði fyrir nokkru og fær ekki leyfi læknis til að takast á hendur það ferða­lag sem ráð­stefnan krefst,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins til Kjarn­ans. Guð­laugur Þór mun þó ávarpa við­burð á vegum Hring­borðs Norð­ur­slóða í gegnum streymi.

Vikan und­ir­lögð fyrir und­ir­bún­ing lands­fundar

Lands­fundur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefst í dag. Guð­laugur Þór til­kynnti á sunnu­dag að hann myndi bjóða sig fram gegn Bjarna á lands­fund­in­um.

Guðlaugur Þór fótbrotnaði í byrjun október og gekkst undir aðgerð vegna brotisins. Mynd: Facebook

Fram­­boðið hafði legið í loft­inu í nokkra daga og spurst hafði út að menn­irnir tveir hefðu fundað undir lok síð­­­ustu viku til að kanna hvort önnur lausn væri á stöð­unni en for­­manns­slag­­ur.

Nið­ur­staðan var fram­boð og hefur vikan verið und­ir­lögð und­ir­bún­ingi þess hjá flokks­mönn­um, sama hvorn þeir styðja. Þannig sótti Birgir Ármanns­son, for­seti þings­ins, til að mynda ekki þing Norð­ur­landa­ráðs sem fram fór í Helsinki í vik­unni og Bryn­dís Har­alds­dótt­ir, for­maður Íslands­deildar Norð­ur­landa­ráðs, fór snemma heim af þing­inu.

50 þátt­tak­endur frá Íslandi skráðir á COP27

Ísland sendir 17 full­trúa á lofts­lags­ráð­stefn­una. Sendi­nefnd­ina skipa full­trúar frá umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu, utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, mat­væla­ráðu­neyt­inu, Umhverf­is­stofnun og Orku­stofn­un. Þá styrkir umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið full­trúa ung­menna til þátt­töku á fund­inum og er þetta í annað sinn sem full­trúi ung­menna er í opin­beru sendi­nefnd­inni.

Auk hinnar form­legu sendi­nefndar sækja þing­menn og full­trúar frá félaga­sam­tökum og fyr­ir­tækjum við­burði sem tengj­ast lofts­lags­ráð­stefn­unni beint eða óbeint, en um 50 þátt­tak­endur frá Íslandi eru skráð á COP27 og tengda við­burði. Áætlað er að í kringum 20 þús­und manns taki þátt í lofts­lags­ráð­stefn­unni og tengdum við­burðum í Sharm El Sheikh.

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra verður fulltrúi íslenskra stjórnvalda á COP27. Mynd: Bára Huld Beck

COP er stytt­ing á enska heit­inu „Con­­­­fer­ence of the Parties“ eða ráð­­­­stefna aðild­­­­ar­­­­ríkja og er þar vísað til alþjóð­­­­legra samn­inga, ann­­­­ars vegar um lofts­lags­­­­mál og hins vegar fjöl­breytni líf­­­­rík­­­­is­ins. Sam­ein­uðu þjóð­­­­irnar skipu­­­­leggja ráð­­­­stefn­­­­urnar en þátt­tak­endur eru hátt­­­­settir full­­­­trúar ríkja, stað­bund­inna sam­­­­taka og frjálsra félaga­­­­sam­­­­taka. Lofts­lags­ráð­­stefnan í Egypta­landi verður sú 27. í röð­inni og kall­­ast því stytt­ingar og ein­­föld­unar COP27.

Á ráð­stefn­unni í ár mun Ísland leggja áherslu á að ekki verði vikið frá mark­miði Par­ís­ar­samn­ings­ins um að halda hlýnun jarðar frá iðn­bylt­ingu innan við 1,5 °C, en sam­kvæmt nýrri skýrslu Umhverf­is­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna munu núver­andi lof­orð ríkja um sam­drátt í losun ekki duga til að mark­miðið náist.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent