Guðlaugur Þór varði 11 milljónum króna í baráttunni við Áslaugu Örnu

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, sem varð hlutskarpastur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, varði 11,1 milljón króna í prófkjörsbaráttu sinni gegn Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Hann lagði sjálfur út 4,4 milljónir króna.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra.
Auglýsing

Útgjöld vegna fram­boðs Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar utan­rík­is­ráð­herra í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­víku námu alls 11,1 milljón króna, en þetta kemur fram í upp­gjöri frá honum sem birt­ist á vef Rík­is­end­ur­skoð­unar í dag.

Guð­laugur Þór fékk alls tæpar 7 millj­ónir króna í styrki frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­ling­um, en að auki lagði hann sjálfur per­sónu­lega 4,4 millj­ónir króna í próf­kjörs­bar­átt­una gegn Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra.

Hvort eigin fram­lög ráð­herr­ans til bar­átt­unnar hafi verið það sem reið bagga­mun­inn er alls óvíst, en raunin varð þó sú að Guð­laugur Þór varð hlut­skarpastur í próf­kjöri flokks­ins í Reykja­vík.

Auglýsing

Áslaug Arna fékk 8,7 millj­ónir í styrki í sinni fram­boðs­bar­áttu. Styrkir til Guð­laugs Þórs frá fyr­ir­tækjum námu alls rúmum 2,8 millj­ónum króna, en styrkir frá 24 ein­stak­lingum námu 4,1 millj­ón.

Tvö fyr­ir­tæki, T22 ehf. og Bílar og fólk ehf., styrktu Guð­laug Þór um hámarks­upp­hæð, sem er 400 þús­und krón­ur.

Alls varði Guð­laugur Þór tæpum 4,7 millj­ónum króna í aug­lýs­ingar og 6,4 millj­ónum króna í rekstur kosn­inga­skrif­stofu, sam­kvæmt upp­gjör­inu.

Guð­rún Haf­steins­dóttir setti tvær millj­ónir í slag­inn

Guðrún Hafsteinsdóttir leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurkjördæmi.

Guð­rún Haf­steins­dótt­ir, sem sigr­aði próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi varði tveimur millj­ónum króna í próf­kjörs­slag sinn gegn Vil­hjálmi Árna­syni þing­manni, sem einnig sótt­ist eftir efsta sæt­inu.

Guð­rún fékk styrki frá fyr­ir­tækjum og ein­stak­lingum að and­virði tæp­lega 1,9 millj­óna króna. Fram­boð Guð­rúnar fékk 400 þús­und króna hámarks­styrk frá einu félagi, V.S. invest­ment ehf.

Ásmundur Frið­riks­son, sem bauð einnig fram í Suð­ur­kjör­dæmi og náði þriðja sæti, varði rúmum 3,2 millj­ónum króna til sinnar bar­áttu, eins og Kjarn­inn sagði frá í gær.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent