Guðmundur Árni leiðir hjá Samfylkingunni í Hafnarfirði

29 árum eftir að hann hætti sem bæjarstjóri í Hafnarfirði mun Guðmundur Árni Stefánsson leiða lista Samfylkingarinnar í sveitarfélaginu í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hann tók síðast virkan þátt í pólitík árið 2005.

Guðmundur Árni Stefánsson.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Auglýsing

Guð­mundur Árni Stef­áns­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Hafn­ar­fjarð­ar, mun leiða lista Sam­fylk­ing­ar­innar í sveit­ar­fé­lag­inu í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um. Hann sigr­aði í flokksvali flokks­ins í dag með yfir­burð­um. Alls fékk Guð­mundur Árni 537 atkvæði í fyrsta sæti list­ans, en alls greiddu 962 atkvæði. Í öðru sæti var Sig­rún Sverr­is­dóttir með 290 atkvæði í fyrsta til annað sætið og Árni Rúnar Þor­valds­son, sem sótt­ist einnig eftir odd­vita­sæt­inu, varð í þriðja sti með 485 atkvæði í fyrsta til þriðja sæt­ið. 

Hildur Rós Guð­bjargs­dóttir varð í fjórða sæti, Stefán Már Gunn­laugs­son í þvi fimmta og Kol­brún Magn­ús­dóttir í sjötta. Kosn­ingar í sex efstu sætin eru bind­andi. Sam­fylk­ingin er sem stendur í minni­hluta í Hafn­ar­firði þar sem meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks ræður ríkj­u­m. 

Auglýsing
Guðmundur Árni til­kynnti nokkuð óvænt um end­ur­komu sína í stjórn­mál fyrir um mán­uði síð­an. Í stöð­u­­upp­­­færslu á Face­book sagð­ist hann vera viss um að Sam­­fylk­ingin geti orðið stærsti flokkur bæj­­­ar­ins. „Fái ég stuðn­­ing flokks­­fé­laga minna í próf­­kjör­inu, þá stefni ég óhikað að því að Sam­­fylk­ing vinni góðan sigur í bæj­­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ingum í maí og tvö­­faldi bæj­­­ar­­full­­trú­a­­tölu sína, þ.e. úr tveimur í fjóra. Og að afloknum kosn­­ingum geti Sam­­fylk­ingin í góðu sam­­starfi við aðra flokka tekið við for­ystu um stjórn bæj­­­ar­ins.“

Guð­­mundur Árni, sem verður 67 ára í haust, hefur áður verið leið­andi afl í bæj­­­ar­­stjórn­­­arpóli­­tík í Hafn­­ar­­firði. Hann sat í bæj­­­ar­­stjórn í tólf ár á síð­­­ustu öld, þar af sem bæj­­­ar­­stjóri í sjö. Guð­­mundur Árni steig upp úr þeim stóli 1993, fyrir 29 árum síð­­an, og sett­ist á þing í kjöl­farið fyrir Alþýð­u­­flokk­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent