Sjálfstæðisflokkur myndi tapa tveimur borgarfulltrúum samkvæmt nýrri könnun

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun um fylgi flokka í Reykjavík myndi Sjálfstæðisflokkurinn missa tvo borgarfulltrúa og einungis fá tæplega 22 prósent atkvæða. Píratar myndu bæta við sig tveimur fulltrúum samkvæmt könnuninni.

Langt er síðan könnun hefur birst um fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg. Sú sem birt var í kvöld sýnir töluverðar sviptingar.
Langt er síðan könnun hefur birst um fylgi flokkanna í Reykjavíkurborg. Sú sem birt var í kvöld sýnir töluverðar sviptingar.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi missa tvo borg­ar­full­trúa, Við­reisn einn og Mið­flokk­ur­inn þurrkast út, sam­kvæmt fyrstu skoð­ana­könn­un­inni sem birt­ist í þeirri kosn­inga­bar­áttu sem nú er í start­hol­unum í Reykja­vík­ur­borg.

Sam­kvæmt könnun Mask­ínu fyrir frétta­stofu Stöðvar 2, Bylgj­unnar og Vísis, sem birt var í kvöld, myndu Píratar hins vegar bæta við sig tveimur borg­ar­full­trú­um, Vinstri græn einum og Fram­sókn myndi ná inn einum manni. Könn­unin var fram­kvæmd í lok jan­úar og byrjun febr­ú­ar, sam­kvæmt því sem segir í umfjöllun Vís­is.

Sam­fylk­ing stærst og Píratar bæta tveimur við sig

Sam­fylk­ingin mælist stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 27,9 pró­sent fylgi og 7 borg­ar­full­trúa, rétt eins og í dag. Þar á eftir kemur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 21,9 pró­sent fylgi, sem er 9 pró­sentum undir kjör­fylgi flokks­ins í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2018.

Auglýsing

Píratar mæl­ast á tölu­verðu skriði, mæl­ast með 14,8 pró­sent fylgi og myndu sam­kvæmt því bæta við sig tveimur borg­ar­full­trúum og fá fjóra menn kjörna. Allir aðrir flokkar mæl­ast undir tíu pró­sent­um, en Vinstri græn mæl­ast með 8,5 pró­sent fylgi og myndi bæta við sig einum borg­ar­full­trúa.

Fram­sókn, sem á engan borg­ar­full­trúa í dag mælist svo með 6,5 pró­sent fylgi, Við­reisn 5,9 pró­sent, Sós­í­alista­flokk­ur­inn 5,5 pró­sent og Flokkur fólks­ins 5,4 pró­sent. Það myndi skila hverjum þess­ara flokka einum borg­ar­full­trúa.

Mið­flokk­ur­inn, sem boð­aði í vik­unni að hann myndi halda próf­kjör í Reykja­vík, mælist svo með 3,5 pró­senta fylgi sem myndi ekki duga til að fá mann kjör­inn inn í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, þar sem 23 kjörnir full­trúar eiga sæti.

Síð­asta könnun í mars 2021

Í síð­ustu birtu könnun á fylgi flokka í Reykja­vík­­­ur­­borg, sem Gallup gerði og var birt 4. mars í fyrra, mæld­ist Sam­fylk­ingin rétt eins og nú með mest fylgi allra flokka í borg­inni. Borg­­ar­­stjórn­­­ar­­flokkur flokks­ins mæld­ist þá með 26,4 pró­­sent fylgi en Sam­­fylk­ingin fékk 25,9 pró­­sent atkvæða í borg­­ar­­stjórn­­­ar­­kosn­­ing­unum 2018.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem var stærsti flokk­­ur­inn í borg­inni eftir síð­­­ustu kosn­­ingar með 30,8 pró­­sent fylgi, mæld­ist með 25,2 pró­­sent í mars í fyrra og dalar því enn síðan þá, sam­kvæmt þess­ari nýju könnun frá Mask­ínu.

Núver­andi leið­togi flokks­ins í borg­inni, Eyþórs Arn­alds, sagði við Kjarn­ann fyrir nokkrum vikum síðan að hann teldi að flokk­ur­inn myndi bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ingum og verða sá langstærsti í Reykja­vík. Sagð­ist hann hafa „til­finn­ingu“ fyrir 35-36 pró­senta fylgi flokks­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent