Ólga í Rúgbrauðsgerðinni

Allir þrír starfsmennirnir á skrifstofu Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga hafa sagt upp störfum hjá félaginu. Varaformaður stjórnarinnar tilkynnti í yfirlýsingu í dag að hún væri hætt í stjórninni vegna samstarfsörðugleika innan hennar.

Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Bandalags háskólamanna.
Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga er þriðja stærsta félagið innan vébanda Bandalags háskólamanna.
Auglýsing

Allir þrír starfs­menn­irnir á skrif­stofu Kjara­fé­lags við­skipta­fræð­inga og hag­fræð­inga (KVH) hafa sagt upp störfum og munu láta af störfum á næstu vikum og mán­uð­um. Frá þessu var greint í yfir­lýs­ingu frá vara­for­manni stjórnar félags­ins, Ástu Leon­hards­dótt­ur, sem birt­ist á vef KVH í dag.

Ásta sagði í þess­ari sömu yfir­lýs­ingu að upp­sagnir starfs­manna á skrif­stofu stétt­ar­fé­lags­ins mætti rekja til hnökra í sam­starfi stjórnar félags­ins og að brestir í sam­starfi stjórn­ar­innar hefðu haft afleið­ingar á skrif­stofu félags­ins sem skapað hefur „stig­vax­andi ókyrrð í starfs­ör­yggi grand­lausra starfs­manna þar“. Sjálf ætlar hún að hætta í stjórn­inni. For­maður stjórnar KVH er Stefán Þór Björns­son.

Starfs­menn­irnir á skrif­stofu félags­ins eru þrír tals­ins, fram­kvæmda­stjóri og tveir aðrir sér­fræð­ing­ar. Skrif­stofa KVH er með aðsetur á sama stað og Banda­lag háskóla­manna (BHM) í Borg­ar­túni 6, í húsi sem gjarnan gengur undir nafn­inu Rúg­brauðs­gerðin frá fyrri tíð. Félags­menn KVH eru um 1.700 tals­ins og er félagið það þriðja stærsta innan BHM.

Segir rekstr­ar­rof framundan hjá félag­inu

„Nú er svo komið að allir starfs­menn á skrif­stofu KVH hafa sagt upp störf­um. Sú þekk­ing sem býr í starfs­fólki skrif­stof­unnar mun á næstu dögum og vikum hverfa með brott­hvarfi þeirra. Er það mjög miður og er hér um altjón félags­ins að ræða. Kom­ast hefði mátt hjá þess­ari stöðu en stjórn sneiddi hjá tæki­færum til þess þrátt fyrir við­vör­un­ar­merki í þá veru. Framundan er rekstr­ar­rof á skrif­stofu KVH,“ segir í yfir­lýs­ingu Ástu.

Auglýsing

Þar segir einnig að hún sem kjör­inn full­trúi í stjórn KVH sé miður sín yfir því að „horfa á bak metn­að­ar­fullum og fag­legum sér­fræð­ingum félags­ins ganga út og hverfa til ann­arra starfa“.

Ásta seg­ist sjálf ætla að hverfa úr stjórn félags­ins í „von um að það verði til þess að auka sam­starfsvilja og virð­ingar innan stjórnar sem kunni að tak­marka það tjón sem þegar er orð­ið.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent