Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður hefur verið ráðin til starfa á Ríkisútvarpinu, þar sem hún mun stýra Morgunvaktinni á Rás 1 næsta hálfa árið og leysa Þórunni Elísabetu Bogadóttur af á meðan hún er í fæðingarorlofi. Frá þessu segir í tilkynningu frá RÚV í dag.
Guðrún hefur verið blaðamaður á Morgunblaðinu frá því árið 1996, en lét af störfum síðastliðið vor. Á Morgunblaðinu var Guðrún meðal annars fréttastjóri viðskipta og fréttastjóri á mbl.is. Á undanförnum árum hafa yfirgripsmiklir greinaflokkar hennar um skólamál, geðheilbrigðismál og fleira vakið athygli.
Í tilkynningu frá RÚV er haft eftir Guðrúnu að hún hlakki til að takast á við nýjar áskoranir og að þetta verði í fyrsta skipti sem hún starfi við útvarp.
„Mikil gerjun á sér stað í útvarpi um allan heim og Rás 1 hefur fylgst vel með þeirri þróun, bæði í mótun línulegrar dagskrár og í hlaðvarpsþáttum. Ég er þakklát fyrir að fá tækifæri til að starfa við hlið Björns Þórs Sigbjörnssonar á Morgunvaktinni næstu mánuði og læra af honum enda afburðadagskrárgerðarmaður líkt og Þórunn Elísabet Bogadóttir, sem ég leysi af á meðan hún er í fæðingarorlofi,“ er haft eftir Guðrúnu.
„Það er mikið gleðiefni að fá Guðrúnu í lið með okkur og við bjóðum hana velkomna,“ segir Þröstur Helgason dagskrárstjóri Rásar 1, í tilkynningunni.