Markaðsvirði Eimskips hefur hækkað um 53 milljarða króna á einu ári

Þrátt fyrir að Eimskip hafi gert upp risavaxna sekt vegna samkeppnisbrots á öðrum ársfjórðungi þá vænkaðist hagur félagsins verulega. Tekjur hækkuðu mikið og fjármagnskostnaður dróst saman. Hlutabréf í félaginu hafa margfaldast í verði á einu ári.

Eimskip
Auglýsing

Virði hluta­bréfa í Eim­skip hafa hækkað um rúm­lega 220 pró­sent á einu ári. Þann 20. ágúst í fyrra var mark­aðsvirði Eim­skips um 24 millj­arðar króna. Við lok við­skipta í gær var það komið upp í um 77 millj­arða króna. Það hefur því hækkað um 53 millj­arða króna á einu ári. 

Bréf félags­ins hækk­uðu umtals­vert í gær, um tíma yfir tíu pró­sent, eftir að félagið birti hálfs­árs­upp­gjör sitt á fimmtu­dag sem þótti jákvætt. Tekjur félags­ins á fyrri hluta árs­ins 2021 voru 21,4 pró­sent meiri en þær voru á sama tíma­bili í fyrra og fjár­magns­kostn­aður Eim­skips hefur lækkað um 35,4 pró­sent milli ára, sem má rekja til virkrar skulda­stýr­ingar og hríð­lækk­andi vaxta á lánum vegna ákvarð­ana seðla­banka heims­ins um að örva efna­hags­kerfi vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veiru. EBIT­DA-hagn­að­ur, hagn­aður fyrir skatta, fjár­magns­kostnað og afskrift­ir, jókst um heil 81,6 pró­sent milli ára og hagn­aður félags­ins var 16,2 millj­ónir evra, um 2,4 millj­arðar króna á fyrri hluta árs­ins 2021. 

Um 43 pró­sent af tekjum Eim­skips koma frá Íslandi sem er sama hlut­fall og var á fyrri hluta árs í fyrra. 

Sömdu um sam­keppn­islaga brot og verðið rauk upp

Þann 16. júní síð­ast­lið­inn var greint frá því að Eim­skip hefði gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um greiðslu 1,5 millj­arða króna stjórn­valds­sektar vegna alvar­legra brota gegn sam­keppn­is­lögum og EES-­samn­ingum sem framin voru í sam­ráði við Sam­skip, aðal­lega á árunum 2008 til 2013.

Sama dag og til­kynnt var um sátt­ina upp­færði Eim­skip afkomu­spá sína. Í  til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á þeim tíma sagði að sam­kvæmt stjórn­enda­upp­gjöri fyrir apríl og maí, ásamt áætlun fyrir júní, liti út fyrir að „EBITDA af rekstri á öðrum árs­fjórð­ungi 2021 verði umtals­vert betri en afkoma sama árs­fjórð­ungs síð­asta árs og jafn­framt betri en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Hins vegar hefur nýgerð sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem til­kynnt var um fyrr í dag nei­kvæð áhrif á afkom­una.“

Auglýsing
Það reynd­ist rétt þrátt fyrir að sektin sé gjald­færð á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins. 

Í sátt­inni  við Sam­keppn­is­eft­ir­litið gekkst Eim­skip við því að hafa líka við­haft ólög­mætt sam­ráð við Sam­skip áður en stór­tækara sam­ráð á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja hófst sum­arið 2008.

Að auki við­ur­kenndi Eim­skip að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með því að hafa ekki veitt nauð­syn­legar eða réttar upp­lýs­ingar eða afhent gögn í þágu rann­sóknar máls­ins, en félagið hefur á fyrri stigum rann­sóknar máls­ins neitað því að hafa gerst brot­legt við lög.

Frá því að til­kynnt var um sátt­ar­gerð­ina fyrir rétt um tveimur mán­uðum síðan hafa hluta­bréf í Eim­skip hækkað um næstum 55 pró­sent, eða 27,4 millj­arða króna. 

Sam­herji Hold­ing langstærsti eig­and­inn

Langstærsti ein­staki eig­andi Eim­skips er Sam­herji Hold­ing ehf., sem heldur á 34,22 pró­sent eign­ar­hlut. Sá hlutur er nú met­inn á 26,6 millj­arða króna. Félagið keypti upp­haf­lega 25,3 pró­sent hlut í Eim­skip á ell­efu millj­arða króna fyrir tæpum þremur árum síð­an. Aðrir stórir eig­endur eru aðal­lega íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir.

Bald­vin Þor­steins­son, sem stýrir erlendri starf­semi Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður Eim­skips. Vil­helm Már Þor­steins­son, frændi stjórn­ar­for­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja Hold­ing, er for­stjóri félags­ins. 

Sam­herji Hold­ing er sá hluti sam­stæðu Sam­herja sem heldur utan um erlendan hluta henn­ar. Félagið er á meðal þeirra sem eru til rann­sóknar hjá emb­ættum hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra um þessar mundir vegna gruns um mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Þær rann­sóknir hófust í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða var opin­berað í nóv­em­ber 2019. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, Helga S. Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, og Krist­ján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Sam­herja, eru að uppi­stöðu stærstu eig­endur Sam­herja Hold­ing. 

Félagið hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árin 2019 né 2020. Það skil­aði síð­ast árs­reikn­ingi fyrir árið 2018 í lok ágúst­mán­aðar 2019 og því hefur Sam­herji Hold­ing ekki skilað inn árs­reikn­ingi líkt og lög gera ráð fyrir síðan að Sam­herj­a­málið kom upp. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent