Gunnar Bragi ráðinn til stofnunar SÞ um eyðimerkursamninginn

Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um samning stofnunarinnar um varnir gegn eyðimerkurmyndun (UNCCD). Hann segir lífið eftir pólitík „æðislegt“.

Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD).
Gunnar Bragi Sveinsson tók nýverið við starfi sérstaks ráðgjafa framkvæmdastjóra stofnunar Sameinuðu þjóðanna um eyðimerkursamninginn (UNCCD).
Auglýsing

Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi þing­­flokks­­for­­maður Mið­­flokks­ins og odd­viti flokks­ins í Suð­vest­­ur­­kjör­­dæmi, sagði skilið við stjórn­málin síð­asta haust. Í sumar sótti hann um starf hjá stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna um eyði­merk­ur­samn­ing­inn (UNCCD). Hann fór í atvinnu­við­tal í októ­ber, ásamt nokkrum öðrum, og bauðst starfið með skömmum fyr­ir­vara fyrr í þessum mán­uði. Ráðn­ingin er til eins árs, að minnsta kosti til að byrja með.

Ísland er á meðal stofn­enda vina­hóps Eyði­merk­ur­samn­ings­ins á vett­vangi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem kom því til leiðar að vernd­un, end­ur­heimt og stöðvun land­eyð­ingar hlyti rík­ari sess í Heims­mark­mið­unum en áætlað var. Síð­ast­liðið ár hefur Ísland einnig leitt samn­inga­við­ræður um ályktun er varðar eyði­merk­ur­myndun og land­græðslu. Gunnar Bragi segir tengsl Íslands við stofn­un­ina hafa verið til staðar í mörg ár.

Auglýsing

„Við höfum stutt við stofn­un­ina í gegnum Land­græðslu­skóla Sam­ein­uðu þjóð­anna og síðan hefur þetta verið hluti af okkar þró­un­ar­sam­vinnu í nokkur ár,“ segir hann í sam­tali við Kjarn­ann. Þá segir hann utan­rík­is­ráðu­neytið hafa stutt við samn­ing­inn með fjár­fram­lög­um, líkt og marga aðra, und­an­farin ár.

Óljóst hvort hann geti sinnt háskóla­nám­inu með­fram nýja starf­inu

Stofn­unin hefur aðsetur í Bonn í Þýska­landi og er Gunnar Bragi fluttur þangað en fjöl­skyldan er enn heima. „Það er verið að finna út úr þessu öllu sam­an.“ Gunnar Bragi starfar sem sér­stakur ráð­gjafi Ibra­him Thi­aw, fram­kvæmda­stjóra stofn­un­ar­inn­ar, en ráð­gjafar hans eru nokkr­ir.

Gunnar Bragi hóf nám við Háskól­ann á Bif­röst eftir að þing­mennsk­unni lauk síð­asta haust en hann segir það óljóst hvort hann geti stundað námið með­fram nýja starf­inu. Aðspurður hvernig lífið sé eftir að þing­mennsk­unni lauk segir hann það vera „æð­is­leg­t“.

Braut siða­reglur með ummælum á Klaustri

Gunnar Bragi tók sæti á Alþingi árið 2009, fyrst fyrir Fram­­sókn­­ar­­flokk­inn en hann fylgdi svo Sig­­mundi Davíð Gunn­laugs­­syni út úr þeim flokki þegar sá síð­­­ar­­nefndi stofn­aði Mið­­flokk­inn í aðdrag­anda kosn­­inga 2017. Gunnar Bragi sat bæði sem utan­­­rík­­is­ráð­herra og sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og land­­bún­­að­­ar­ráð­herra í rík­­is­­stjórn Sig­­mundar Dav­­íðs á árunum 2013 til 2016. Hann var kjör­inn fyrsti vara­­for­­maður Mið­­flokks­ins en það emb­ætti hefur síðan verið lagt nið­­ur.

­Stofnun Mið­flokks­ins má rekja til afsagnar Sig­­mundar Dav­íðs sem for­­sæt­is­ráð­herra vegna Pana­ma­skjal­anna í apríl 2016 og tap­ hans í for­­manns­­kosn­­ingu í Fram­­sókn­­ar­­flokknum fyrir Sig­­urði Inga Jóhanns­­syni í aðdrag­anda kosn­­inga þá um haust­ið.

Árið 2019 komst ráð­­gef­andi siða­­nefnd Alþingis að þeirri nið­­ur­­stöðu að Gunnar Bragi og Berg­þór Óla­­son, annar þing­­maður Mið­­flokks­ins, hefðu brotið siða­­reglur Alþingis með ummælum sem þeir létu falla á barnum Klaustri þann 20. nóv­­em­ber 2018, og voru tekin upp af öðrum gesti sem þar var. Gunnar Bragi fór í leyfi frá störfum eftir að málið kom fyrst upp og hélt því fram að hann hefði verið ofurölvi þegar atburð­­ur­inn átti sér stað. Sökum þess bar hann við minnis­­leysi.

Aðrir þing­­­menn sem tóku þátt í sam­tal­inu, Sig­­­mund­ur Davíð Gunn­laugs­­­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­­menn Mið­­flokks­ins, og Karl Gauti Hjalta­­­son og Ólaf­ur Ísleifs­­­son, sem voru í Flokki fólks­ins þegar sam­talið átti sér stað en gengu síðar til liðs við Mið­­flokk­inn, brutu ekki gegn siða­regl­um að mati nefnd­­ar­inn­­ar.

Nefndin fór yfir ummæli Gunn­­ars Braga um Albertínu Frið­­­björgu Elí­a­s­dótt­­ur, þing­­mann Sam­­fylk­ing­­ar­inn­­ar, og Lilju Alfreðs­dótt­­ur, mennta­­mála­ráð­herra. auk Ragn­heiðar Run­­ólfs­dótt­­ur, fyrr­ver­andi sund­­konu. Kom­ist var að þeirri nið­­ur­­stöðu að í ummæl­unum fælist van­virð­ing í garð umræddra kvenna og þau væru til þess fallin að skaða ímynd Alþing­­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent