Hæsta viðbúnaðarstig í Frakklandi

h_52027012-1.jpg
Auglýsing

Dag­ur­inn hefur verið sér­kenni­leg­ur. Skuggi hryðju­verka liggur yfir land­inu. Í Gex, litl­um, frið­sælum bæ þar sem ég bý, ekki langt frá Lyon, eru allt í einu und­ar­legir lög­reglu­bílar á sveimi. Þótt að sólin skín­i og allt virð­ist leika í lynd­i er stemn­ingin ein­hvern veg­inn breytt. Það er ókyrrð í loft­inu. Fólk á förnum vegi ræðir sín á milli: „Er þetta að ger­ast aft­ur?“ Og svo er það blóð­baðið í Tún­is. Ætlar þetta engan endi að taka?

Öll örygg­is­gæsla í kringum Lyon og nágrenni hefur verið hert í kjöl­far árás­ar­innar á gasvinnslu­stöð­ina í Sain­t-Quentin Falla­vier sem er í 40 kíló­metra fjar­lægð frá Lyon. Þar var maður afhöfð­aður og ein­hverjir særð­ust. Einn er í haldi lög­reglu grun­aður um ódæð­ið. Hann er sagður hafa keyrt á bíl inn í verk­smiðj­una. For­seti Frakk­lands, Francois Hollande, segir þetta vera hryðju­verk og að til­gang­ur­inn hafi verið að sprengja upp verk­smiðj­una. Lög­reglu­yf­ir­völd hafa sagt að hinn látni hafi verið kaup­sýslu­maður úr nágrenn­inu. Höfuð hans var hengt upp á hlið gasverk­smiðj­unnar með arab­ískum áletr­un­um. Talið er víst að morð­ing­inn sé íslamskur öfga­mað­ur.

Ráða­menn franska ríks­ins hafa brugð­ist hratt við og hert alla örygg­is­gæslu og hækkað við­bún­aða­stig í botn í kringum Lyon og nágrenni. Inn­an­rík­is­ráð­herrann, Bern­­ard Cazeneu­ve, mætti á stað­inn í morgun og greindi fjöl­miðlum frá því að ­fáni íslamska ríks­ins hefði fund­ist rétt hjá morð­staðn­um. Það liggur í svörum frönsku ráð­herr­anna að þetta sé enn ein stríðs­yf­ir­lýs­ing Íslamska ríks­ins við Frakk­land. Og að við því verði brugð­ist.

Auglýsing

Hryðju­verka­dagur



Á sama tíma ber­ast hrylli­legar fréttir frá Tún­is: hryðju­verka­árásin á bað­strönd­inni kost­aði 27 manns líf­ið; mann­skæð­asta árás sem gerð hefur verið í land­inu í langan tíma. Margir hinna látnu voru erlendir ferða­menn. Í jan­úar síð­ast liðnum lét­ust 17 manns í árásum öfga­manna í Par­ís. Til­gangur árás­ar­innar í morgun virð­ist vera sá sami og þá: að vekja upp ótta og tor­tryggni í garð múslima til þess að þeir ein­angr­ist enn frekar í Frakk­landi og að ungt fólk gangi síð­ar­ til liðs við öfga­sam­taka á borð við Íslamska rík­ið. Yfir­völd gáfu til kynna í vor að hert ­eft­ir­lit með grun­uðum hryðju­verka­mönnum hefði leitt til þess að fjöldi árása hefði verið afstýrt á þessu ári.

Einn besti vinur sex ára sonar míns er múslimi. Á leið frá skól­anum í dag spjall­aði ég aðeins við móður hans. Hún var miður sín yfir þessum frétt­um: „Þetta er bara hrylli­legt. Það er erf­ið­ara að vera múslimi eftir svona árás. Þessir menn eru að eyði­leggja allt fyrir okk­ur“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None