Hafa beðið í rúman áratug eftir að eignast eigið heimili

Aðstæður fatlaðra á húsnæðismarkaði eru „ólíðandi“ sem „ábyrg stjórnvöld ríkis og sveitarfélaga“ verða að setja í algjöran forgang að bæta úr. Þroskahjálp sendir stjórnvöldum tóninn og hvetur til þess að breytingum á skipulagslögum verði hraðað.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, og Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður samtakanna
Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, og Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður samtakanna
Auglýsing

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp fagna drögum að frum­varpi um breyt­ingar á skipu­lags­lögum þar sem m.a. er að finna ákvæði er veitir sveit­ar­fé­lögum heim­ild til þess að gera kröfu um að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns í nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúð­ir, félags­legar íbúð­ir, eða aðrar leigu­í­búð­ir, óháð því hvort sveit­ar­fé­lag­ið, ríkið eða einka­að­ili á landið sem um ræð­ir.

Auglýsing

Í umsögn sam­tak­anna um frum­varps­drög­in, sem Unnur Helga Ótt­ars­dóttir for­maður Árni Múli Jón­as­son fram­kvæmda­stjóri rita, eru hlut­að­eig­andi stjórn­völd og Alþingi hvött til að hraða með­ferð máls­ins þannig að frum­varpið verði sem fyrst að lög­um. Það muni greiða fyrir því að „sveit­ar­fé­lög standi við laga­legar skyldur sínar til að fatlað fólk hafi tæki­færi til hús­næðis og eigin heim­il­is, án ófor­svar­an­legs drátt­ar“.

Unnur Helga og Árni Múla benda í umsögn Þroska­hjálpar á að í lögum nr. 38/2018, um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarf­ir, er mælt fyrir um „að fatlað fólk eigi rétt á því að velja sér búsetu­stað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra“ og að „óheim­ilt sé að binda þjón­ustu við fatlað fólk því skil­yrði að það búi í til­teknu búsetu­formi“. Þá segir í bráða­birgða­á­kvæði í lög­unum að fötl­uðu fólki sem býr nú á stofn­unum eða her­bergja­sam­býlum skuli bjóð­ast aðrir búsetu­kost­ir.

Í skýrslu starfs­hóps um heild­ar­end­ur­skoðun laga nr. 38/2018, sem skilað var til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra síð­asta vor, kom fram að 323 fatl­aðir ein­stak­lingar væru á biðlista eftir hús­næði og 163 byggju í her­berja­sam­býlum og að sam­kvæmt því þurfi að byggja allt að 486 íbúðir til að eyða biðlistum og leggja niður her­bergja­sam­býli.

Ófor­svar­an­legt og ólög­legt

„Margt fólk með þroska­hömlun eða skyldar fatl­anir hefur beðið eftir íbúð, sem það á laga­legan rétt á, mjög leng­i,“ bendir Þroska­hjálp á í umsögn­inni. „Dæmi eru um að fólk hafi þurft að bíða yfir ára­tug og jafn­vel lengur eftir að eign­ast eigið heim­ili. Með þess­ari ófor­svar­an­legu og ólög­legu fram­kvæmd er vegið mjög alvar­lega að marg­vís­legum mik­il­vægum mann­rétt­ind­um, s.s. rétt­inum til sjálf­stæðs og eðli­legs lífs, og rétt­inum til að eiga einka­líf og fjöl­skyldu­líf. Þetta er ólíð­andi ástand sem ábyrg stjórn­völd ríkis og sveit­ar­fé­laga verða að setja í algjöran for­gang að bæta úr.“

Sam­tökin leggja áherslu á að fram­kvæmd laga­á­kvæða um nið­ur­lagn­ingu her­bergja­sam­býla og stofn­ana, þar sem fatlað fólk býr, verði hraðað með því að ráð­ast nú þegar í stór­á­tak við bygg­ingu íbúða fyrir fatlað fólk.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent