Hafa uppgötvað fjórða lekann í Eystrasalti

Gasleiðslurnar Nord Stream 1 og 2 í Eystrasalti leka á fjórum stöðum. Fjórði lekinn uppgötvaðist á þriðjudag en sænska strandgæslan staðfesti tilvist hans í morgun.

Gríðarlegt uppstreymi í Eystrasalti yfir einu gati á gasleiðslunni.
Gríðarlegt uppstreymi í Eystrasalti yfir einu gati á gasleiðslunni.
Auglýsing

Fjögur göt eru á Nord Str­eam 1 og 2 gasleiðsl­unum en ekki þrjú líkt og greint hafði verið frá. Sænska strand­gæslan hefur stað­fest við fjöl­miðla að fjórða gatið sé á Nord Str­eam 2, nýrri leiðsl­unni í Eystra­salti og sé stað­sett um það bil mitt á milli gatanna tveggja á Nord Str­eam 1. Afton­bla­det hefur eftir jarð­skjálfta­fræð­ingi að ekki sé úti­lokað að önnur spreng­ing hafi orðið á svæð­inu.

Auglýsing

Á mánu­dag upp­götv­uð­ust þrjú göt á leiðsl­unum tveimur sem liggja milli Rúss­lands og Þýska­lands. Eitt á Nord Str­eam 2, suð­austan við Borg­und­ar­hólm í danskri efna­hags­lög­sögu, og tvö á Nord Str­eam 1 nokkuð norð­austar á svæð­inu, annað þeirra innan sænskrar lög­sögu, segir í frétt Afton­bla­det í morg­un. Metangas, sem var í leiðsl­un­um, lekur í miklu magni út um göt­in.

Sprengingarnar komu fram á jarðskjálftamælum.

Tveir skjálftar mæld­ust á svæð­inu í byrjun vik­unnar og er talið að þeir séu til marks um að spreng­ing hafi orð­ið. Annar skjálft­inn varð kl. 2.03 aðfara­nótt mánu­dags, á sömu slóðum og göt urðu á Nord Str­eam 2. Skjálft­inn mæld­ist 1,8 stig. Seinni spreng­ingin sem fram kom á skjálfta­mælum varð á sömu slóðum og götin tvö mynd­uð­ust á Nord Str­eam 1. Hún varð kl. 7.04 á mánu­dags­morg­un­inn og mæld­ist skjálft­inn 2,3 stig. Það þýðir að spreng­ingin var fimm sinnum kraft­meiri en sú fyrri.

­Sjór­inn ólgar undan metangas­inu sem streymir upp og talið er að götin á leiðsl­unum sem liggja á um 80 metra dýpi á hafs­botni séu tugir metrar í þver­mál. Sænska strand­gæslan stað­festir við Afton­bla­det að fjórði svelg­ur­inn sem sjá­ist sé um 200 metrar í þver­mál.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um Nord Str­eam 1 og 2 í frétta­skýr­ingu í gær. Hana er hægt að lesa hér. Í henni er rak­inn aðdrag­andi þess að gasleiðsl­urnar miklu voru lagðar í Eystra­saltið og farið yfir kenn­ingar um að skemmd­ar­verk hafi verið unnin á þeim.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent