Hagstofa og innviðaráðherra takast á um húsnæðisliðinn

Innviðaráðherra skoraði á Hagstofu að mæla húsnæðisliðinn með öðrum hætti en gert er núna. Hagstofan hefur svarað að aðferðin sín sé í samræmi við alþjóðlega staðla, en bætir við að löggjafanum sé frjálst að breyta lögum um verðtryggingu.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Auglýsing

„Auð­vitað á vísi­talan að mæla hús­næð­is­verð, en hún á þá að gera það rétt, og hún gerir það ekki í dag,“ sagði Sig­urður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra, í útvarps­við­tali í Bít­inu á Bylgj­unni í morg­un.

Sam­kvæmt Sig­urði styðst Hag­stofan við ranga aðferð við að mæla hús­næð­is­kostnað í svoköll­uðum hús­næð­islið í vísi­tölu neyslu­verðs. Með reikni­að­ferð­inni hafa sveiflur í fast­eigna­verði áhrif á verð­bólgu, en Sig­urður segir þessa teng­ingu hafa magnað upp verð­sveiflur hér­lend­is.

Áður fyrr hefur Sig­urður Ingi sagt að miki áhrif hús­næð­islið­ar­ins á verð­bólgu þessa stund­ina gæfu til­efni til að íhuga hvort fjar­lægja ætti hann í heild sinni úr vísi­töl­unni.

Auglýsing

Magnar ekki, heldur jafnar

Líkt og Kjarn­inn hefur áður bent á er stað­hæf­ing Sig­urðar Inga um að hús­næð­islið­ur­inn magni upp verð­bólg­una hér­lendis þó röng. Sam­kvæmt tölum Hag­stofu er þessu öfugt far­ið, vísi­tala neyslu­verðs án hús­næð­islið­ar­ins hefur sveifl­ast meira en venju­lega vísi­tal­an.

Ólafur Hjálm­ars­son hag­stofu­stjóri benti einnig á þessa stað­reynd í frétt Vísis sem birt­ist fyrr í dag, en þar sagði hann hús­næð­islið­inn hafi jafnað sveiflur í vísi­töl­unni. Þegar gengið hafi fallið og vöru­verð hækkað hafi hús­næð­is­verð lækk­að.

Í sam­ræmi við alþjóð­lega staðla

Hag­stofan gaf svo frá sér til­kynn­ingu eftir hádegi í dag þar sem farið var yfir til­vist hús­næð­islið­ar­ins í vísi­tölu og reikni­að­ferð­irnar á hon­um.

Þar bendir stofn­unin á að starfs­hópur hafi verið skip­aður í tenslum við gerð lífs­kjara­samn­ing­ana til að meta þá aðferð­ar­fræði sem Hag­stofa not­aði við útreikn­ing á vísi­tölu neyslu­verðs. Sam­kvæmt nið­ur­stöðu hóps­ins er aðferð stofn­un­ar­innar í fullu sam­ræmi við alþjóð­legar aðferða­fræði­lýs­ing­ar.

Þó bætir Hag­stofa við að fyr­ir­komu­lag verð­trygg­ingar sé ákveðið í lögum um vexti og verð­trygg­ingu sem stjórn­mála­menn taka ákvörðun um. „Hag­stofa Íslands reiknar margar vísi­tölur og þar á meðal vísi­tölu neyslu­verðs, bæði með og án hús­næð­is,“ segir stofn­un­in.„ Sé vilji til þess að breyta verð­trygg­ingu fjár­skuld­bind­inga er Alþingi í lófa lagið að breyta lögum um vexti og verð­trygg­ingu óháð þeirri aðferð­ar­fræði sem beitt er við að reikna vísi­tölu neyslu­verðs.“

Í útvarps­við­tali í morgun nefndi Sig­urður Ingi skýrslu nefndar um end­ur­skoðun á fram­tíð pen­inga­stefnu sem rök fyrir að hús­næð­is­kostn­aður væri ekki rétt mældur hér­lend­is, þar sem hún minnt­ist á að lönd studd­ust við mis­mun­andi reikni­að­ferðir til að meta hann.

Nefndin sem Sig­urður vitnar í seg­ist þó ekki taka afstöðu til þess hvernig hús­næð­islið­ur­inn er reikn­aður í vísi­tölu Hag­stof­unnar og segir sjálf­stæði Hag­stofu vera mik­il­vægt. Enn fremur bætir hún við í skýrslu sinni að hægt sé að færa fræði­leg rök fyrir núver­andi mæl­ing­ar­að­ferð stofn­un­ar­inn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent