Hanna Katrín Friðriksson þingflokksformaður Viðreisnar gerði kaup stjórnvalda á Hótel Sögu að umtalsefni á Alþingi í dag undir liðnum störf þingsins. Hún spurði meðal annars hvort vel væri farið með skattfé almennings í þessum gjörningi.
Kjarninn greindi frá því í morgun að í frumvarpi til fjáraukalaga, sem birt var í gærkvöldi, er lagt til að tæplega fjórum milljörðum króna verði ráðstafað úr í ríkissjóði á þessu ári í að kaupa á annars vegar Hótel Sögu við Hagatorg, sem keypt yrði með Félagsstofnun stúdenta, og jörðina Mið-Fossa undir starfsemi Landbúnaðarháskóla Íslands.
Í Fréttablaðinu í dag er jafnframt haft eftir Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, að áætlaður heildarkostnaður í kaupverði og endurbótum á hlut háskólans sé um 6,5 milljarðar króna. Vert er að taka fram að kaupendur á eigninni eru tveir, annars vegar ríkissjóður og hins vegar Félagsstofnun stúdenta.
Hanna Katrín sagði að heimild væri í fjárlögum upp á 6,5 milljarða króna fyrir kaup og endurbætur en hið rétta er að gert er ráð fyrir að ríkissjóður og Félagsstofnun stúdenta standi að kaupunum sameiginlega. Ríkið mun eiga 73 prósent í byggingunni en stofnunin 27 prósent.
Í nýbirtu frumvarpi til fjáraukalaga kemur fram að miðað sé við að fasteignafélag háskólans, sem komið var á fót á þessu ári, muni standa straum af kostnaði vegna viðhalds og endurbóta á þeim hluta eignarinnar sem mun tilheyra háskólanum. Hlutdeild ríkisins í kaupverðinu greiðist hins vegar með sérstakri fjárheimild úr ríkissjóði. Félagsstofnun stúdenta hyggst nýta sinn hluta af húsnæðinu undir stúdentaíbúðir.
Óútfylltur tékki
„Við vitum öll að það mun taka mörg ár að breyta þessu fornfræga hús í skólahús og reynslan sýnir okkur líka að raunkostnaður er yfirleitt mun hærri en áætlanir. Það má jafnvel tala um óútfylltan tékka í þessu samhengi við svona gjörninga,“ sagði hún.
Spurði hún í framhaldinu hvort þetta væri hagstæður gjörningur fyrir hið opinbera. „Er hér farið vel með skattfé almennings? Er það betri meðferð opinbers fjár að kaupa, gera upp og gjörbreyta sögufrægu húsnæði sem er að sögn mikið skemmt, frekar en að reisa byggingu sem er sérstaklega hönnuð með þarfir háskólans í huga?“ spurði hún.
„Þessar vangaveltur um forgangsröðun verkefna eru ekki gripnar úr lausu lofti. Tökum dæmi: Ríkisstjórnin stefnir í að reka ríkissjóð með 170 milljarða króna halla á næsta ári. Hún telur sig ekki hafa svigrúm til að niðurgreiða sálfræðiþjónustu líkt og Alþingi hefur farið fram á og hún ætlar að lækka framlög til mennta- og menningarmála um 2,3 milljarða kr. á milli ára. Svo má líka horfa á þetta með þeim augum að víða um land er húsnæðisskortur og önnur hótel en Hótel Saga eru í rekstrarvanda.
Ætli ríkisstjórnin stefni að því með sömu rökum að kaupa þau hótel og gera að íbúðum? Eða eru rekstraraðilar Hótel Sögu í sérstöðu þegar kemur að rándýrum reddingum eins og þessum sem almenningur greiðir fyrir á endanum?“ spurði hún að lokum.