Hátt í 150 þúsund manns standa utan þjóðkirkjunnar

Þeim sem standa utan þjóðkirkjunnar hefur fjölgað um 112 þúsund frá aldamótum. Það eru fleiri en samanlagður íbúafjöldi Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness.

Höfuðstöðvar þjóðkirkjunnar eru í Katrínartúni í Reykjavík.
Höfuðstöðvar þjóðkirkjunnar eru í Katrínartúni í Reykjavík.
Auglýsing

Í byrjun þessa mán­aðar voru 229.686 ein­stak­lingar skráðir í þjóð­kirkj­una, sam­kvæmt tölum frá Þjóð­skrá Íslands. Þar segir að þessi hópur sé 61,7 pró­sent íbúa lands­ins og þeir sam­kvæmt því rúm­lega 372 þús­und tals­ins. Það þýðir að tæp­lega 143 þús­und íbúar standi utan þjóð­kirkj­unnar nú um stund­ir, og eru þá í öðrum trú­fé­lögum eða standa alveg utan trú­fé­laga. Þeir hafa aldrei verið fleiri. 

um síð­ustu alda­mót stóðu alls tæp­lega 31 þús­und manns utan þjóð­kirkj­unn­ar. Þeim sem kjósa að gera það hefur því fjölgað um 112 þús­und á rúmum tutt­ugu árum. Til að setja þá tölu í sam­hengi þá eru það fleiri en búa sam­an­lagt í Kópa­vogi, Hafn­ar­firði, Garða­bæ, Mos­fellsbæ og á Sel­tjarn­ar­nesi sem stend­ur, en íbúar þess­ara fimm sveit­ar­fé­laga eru sam­tals tæp­lega 104 þús­und tals­ins.

Fækkað hratt

Þeim lands­­mönnum sem eru í þjóð­­kirkj­unni hefur fækkað hratt á síð­ast­liðnum árum. Í byrjun árs 2009 náði fjöldi þeirra met­­­­tölu, en þá voru 253.069 lands­­­­menn í henn­i. 

Auglýsing
Frá þeim tíma hefur þeim fækkað jafnt og þétt og eru nú, líkt og áður sagði, 229.686. Það þýðir að fjöldi þeirra sem skráðir eru í þjóð­­­­kirkj­una hefur dreg­ist saman um 23.383 frá árs­­­­byrjun 2009.

Á sama tíma, tæpum 13 árum, hefur íbúum lands­ins fjölgað um tæp­lega 53 þús­und. Því hafa 76.277 íbúðar lands­ins valið að ganga úr, eða skrá sig ekki í, þjóð­kirkj­una frá byrjun árs 2009. 

Fjórð­ungur seg­ist eiga mikla sam­leið með kirkj­unni

Í könnun sem Mask­ína gerði fyrir Sið­mennt í byrjun árs í fyrra kom fram að rúm­lega 54 pró­sent lands­manna væru fremur eða mjög hlynnt aðskiln­aði ríkis og kirkju og 25,7 pró­sent þeirra segj­ast vera í með­al­lagi hlynnt hon­um. Rúm­lega 20 pró­sent segj­ast vera fremur eða mjög and­víg aðskiln­að­i. 

Í könn­un­inni var einnig spurt hvort að fólk teldi sig eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni. Alls sögð­ust 48,7 pró­sent að þeir ættu litla eða enga sam­leið með henni en 25,7 pró­sent sögðu að þeir ættu nokkra sam­leið. Alls sögðu 25,5 pró­sent aðspurðra að sú sam­leið væri fremur eða mjög mik­il. 

Könn­unin fór fram dag­anna 16. til 22. jan­úar 2020. Svar­endur voru alls staðar að á land­inu, 18 ára og eldri. Alls svör­uðu 954 könn­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent