Heiða Kristín Helgadóttir, einn stofnenda og fyrrverandi stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, ætlar ekki að bjóða sig fram til formanns flokksins.
Heiða segir frá þessu í bréfi til félaga sinna í Bjartri framtíð, sem hún birtir einnig á Twitter og Facebook. Þar kemur fram að breytingarnar sem flokkurinn sé að ganga í gegnum snúist ekki um hana eða hennar metnað heldur um það að flokkurinn geti endurvakið áhuga kjósenda og fundið neistann sem til þarf til að hrífa aðra með.
„Metnaður minn liggur í því að leggja því verkefni lið og ég met stöðuna þannig að það verði best gert með því að ég taki sæti á Alþingi í haust í fæðingarorlofi Bjartar Ólafsdóttur og veiti nýrri forystu stuðning til góðra verka. Þar vil ég sjá konu fremsta meðal jafningja.“ Hún segir einnig að sá dagur kunni að koma að hún bjóði sig fram til forystu, en sá tímapunktur sé ekki núna.
Staðan: pic.twitter.com/m1cFp1H5yV
— Heiða Kristín (@heidabest) August 26, 2015
Ég hef ákveðið að bjóða mig ekki fram til formanns Bjartrar framtíðar. Breytingarnar sem BF er að ganga í gegnum snúast...Posted by Heiða Kristín on Wednesday, August 26, 2015
Heiða Kristín er varaþingmaður flokksins og ætlar að taka sæti á þingi í haust. Hún tekur sæti Bjartar Ólafsdóttur sem fer í fæðingarorlof, en Björt eignaðist tvíbura í dag.
Gagnrýnin setti allt af stað
Nokkur óánægja hefur verið með gang mála innan Bjartrar framtíðar undanfarin misseri, og gagnrýndi Heiða Kristín, sem áður var í forystu flokksins, Guðmund Steingrímsson, formann flokksins, vegna slæmrar stöðu flokksins í viðtali við Kjarnann, en flokkurinn mælist nú með aðeins 4,4 prósent fylgi.
Miðað við það fylgi myndi Björt framtíð ekki ná inn manni í komandi kosningum. Flokkurinn mældist með um 20 prósent fylgi í könnunum í fyrrahaust.
Í kjölfar gagnrýni sinnar á Guðmund sagðist Heiða Kristín opin fyrir því að sækjast eftir formannsembættinu ef vilji væri fyrir því hjá flokksmönnum. Guðmundur tilkynnti í kjölfarið að hann hefði engan áhuga á formannsslag og myndi leggja fram tillögu um að æðstu embætti flokksins myndu róterast. Þá tillögu ætlar hann ennþá að leggja fram á ársfundi Bjartrar framtíðar í byrjun september. Verði sú tillaga samþykkt mun starf formanns og þingflokksformanns róterast á milli sex þingmanna Bjartrar framtíðar en aðrir gegna starfi stjórnarformanns.
Um síðustu helgi var svo greint frá því að Guðmundur ætli að hætta sem formaður Bjartrar framtíðar á ársfundinum. Róbert Marshall mun einnig segja af sér sem þingflokksformaður flokksins. Óttarr Proppé og Brynhildur Pétursdóttir, þingmenn Bjartar framtíðar, hafa bæði verið orðuð við formannsframboð og hafa hvorugt útilokað að af því verði.