Heiðar Örn Sigurfinnsson, sem verið hefur varafréttastjóri RÚV frá árinu 2017 og starfandi fréttastjóri frá áramótum, hefur verið ráðinn fréttastjóri RÚV. Hann var einn fjögurra umsækjenda um stöðuna, sem auglýst var til umsóknar í upphafi árs í kjölfar þess að Rakel Þorbergsdóttir sagði starfi sínu lausu.
Auk Heiðars sóttu þrír aðrir karlar um starfið, Valgeir Örn Ragnarsson fréttamaður, Þór Jónsson sviðsstjóri og Þórir Guðmundsson, fyrrverandi ritstjóri fréttastofu Stövar 2, Vísis og Bylgjunnar.
Heiðar Örn var fyrst ráðinn fréttamaður á fréttastofu RÚV árið 2005 og var þingfréttaritari 2007-2009. Á árunum 2009 til 2018 var hann vakstjóri á fréttastofunni með daglega stjórnun á fréttavakt, ritstjórn og skipulagning fréttavinnslu. Þá var hann um sex ára skeið kosningaritstjóri fréttastofu og fór með skipulag, umsjón og ábyrgð á kosningaumfjöllun RÚV í aðdraganda kosninga. Heiðar Örn hefur frá árinu 2013 lesið fréttir í sjónvarpi. Hann varð varafréttastjóri árið 2017. Í því starfi er meðal annars fólgin ritstjórn og mótun fréttaáherslna fyrir alla miðla í samstarfi við vaktstjóra fréttastofunnar auk daglegs reksturs og mönnunar fréttastofu, áætlanagerð og stefnumótun.
Heiðar Örn er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk prófi í alþjóðasamskiptum frá University of Nottingham í Bretlandi 2004.
Í tilkynningu frá RÚV segir að hlutverk fréttastjóra sé að leiða fréttastofu Ríkisútvarpsins og bera ábyrgð á fréttaflutningi í sjónvarpi, útvarpi og á vef. „Leitað var að stjórnanda með yfirgripsmikla þekkingu af blaða- og fréttamennsku, góða samskipta- og samstarfsfærni og hæfni til að leiða árangursríka teymisvinnu auk annarra hæfniskrafna. Í ráðningarferlinu var staðfest að Heiðar Örn uppfyllir afar vel þessar kröfur sem og aðrar kröfur sem gerðar eru til starfsins,“ segir í tilkynningu á vef RÚV um ráðninguna.
Matthías Már nýr dagskrárstjóri Rásar 2
RÚV greinir einnig frá því í tilkynningu í dag að Matthías Már Magnússon hafi verið ráðinn nýr dagskrárstjóri Rásar 2, en það starf var áður í höndum Baldvins Þórs Bergssonar, sem hefur tekið að sér önnur verkefni innan Ríkisútvarpsins.
Fram kemur í tilkynningu frá RÚV hafi byrjað að vinna við dagskrárgerð og dagskrárstjórnun í útvarpi 2002 á XFM og síðar X-inu 977 hjá 365.
„Hann hefur verið dagskrárgerðarmaður á Rás 2 frá 2008, þar á meðal í Popplandi. Frá 2015 hefur Matthías Már verið tónlistarstjóri og aðstoðardagskrárstjóri Rásar 2. Í því starfi hefur hann annast ýmislegt sem snýr að rekstri Rásar 2, svo sem skipulagningu dagskrár, þjálfun dagskrárgerðarfólks og erlend og innlend samskipti. Auk þess hefur hann sinnt dagskrárgerð fyrir útvarp og sjónvarp,“ segir í tilkynningu RÚV.
Matthías lauk framhaldsnámi í framleiðslu útvarpsefnis frá Bournemouth University í Bretlandi árið 2007 og leggur nú stund á MLM-nám í forystu og stjórnun við Háskólann á Bifröst.