Píratar flykkjast í framboð í Reykjavík

Rúmlega tuttugu manns taka þátt í prófkjöri Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Núverandi oddviti sækist eftir því að leiða listann áfram, en er ekki ein um að sækjast eftir efsta sætinu.

Prófkjöri Pírata í Reykjavík lýkur þann 26. febrúar.
Prófkjöri Pírata í Reykjavík lýkur þann 26. febrúar.
Auglýsing

Alls 23 ein­stak­lingar sækj­ast eftir því að taka sæti á lista Pírata fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík. Flokk­ur­inn, sem á tvo borg­ar­full­trúa í dag og myndar meiri­hluta ásamt Sam­fylk­ingu, Við­reisn og Vinstri græn­um, heldur raf­rænt próf­kjör sem hefst á laug­ar­dag, 19. febr­ú­ar, og lýkur 26. febr­ú­ar.

Dóra Björt Guðjónsdóttir sækist eftir því að leiða Pírata í Reykjavík áfram. Mynd: Aðsend.

Fram­boðs­frestur rann út á þriðju­dag­inn. Báðir sitj­andi borg­ar­full­trúar flokks­ins gefa kost á sér til end­ur­kjörs, þær Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Alex­andra Briem. Sú síð­ar­nefnda var vara­borg­ar­full­trúi framan af kjör­tíma­bili, en tók sæti í borg­ar­stjórn er Sig­ur­borg Ósk Har­alds­dóttir sagði skilið við borg­ar­málin og flutt­ist til Húsa­vík­ur. Alex­andra, sem er for­seti borg­ar­stjórnar í dag, sæk­ist eftir öðru sæt­inu í próf­kjör­inu.

En fleiri eru til kall­að­ir. Nokkrir fram­bjóð­endur hafa sér­stak­lega gefið það út í til­kynn­ingum að und­an­förnu að þau sæk­ist eftir efstu sæt­unum á lista flokks­ins. Á meðal þeirra eru Rann­veig Ernu­dóttir og Atli Stefán Yngva­son, sem bæði gefa kost á sér til þess að leiða list­ann. Þá hafa þeir Krist­inn Jón Ólafs­son og Magnús Davíð Norð­dahl einnig boðað að þeir sæk­ist eftir sætum ofar­lega á lista.

Óljóst er hvort fleiri af þeim 23 sem bjóða sig fram vilja bít­ast um efstu sætin á list­an­um, en í Píratar standa í vik­unni fyrir opnum kynn­ing­ar­fundum á net­inu þar sem fram­bjóð­endur kynna sig fyrir flokks­fólki. Fyrri slíki fund­ur­inn var í gær og sá síð­ari verður í kvöld.

Skoð­ana­könnun sýndi Pírata á sigl­ingu í Reykja­vík

Nýjasta skoð­ana­könn­unin um fylgi flokka í Reykja­vík, sem Mask­ína fram­kvæmdi nýlega, sýndi Pírata með tæp­lega 15 pró­senta fylgi, sem myndi skila flokknum fjórum borg­ar­full­trúum af 23 ef það yrði nið­ur­staðan í kosn­ing­unum í maí.

Auglýsing

Sam­kvæmt reglum próf­kjörs­ins hjá Pírötum er kjör­skráin þegar lok­uð, en ein­ungis þeir sem voru orðnir félagar Pírata í Reykja­vík þann 27. jan­úar sl. hafa atkvæð­is­rétt í próf­kjör­inu.

Sam­kvæmt svari sem Kjarn­inn fékk frá flokknum fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar síð­ast­liðið haust voru skráðir félagar í flokknum í Reykja­vík þá um 1.800 tals­ins.

Fram­bjóð­endur í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík

  • Alex­andra Briem
  • Vignir Árna­son
  • Unnar Þór Sæmunds­son
  • Tinna Helga­dóttir
  • Sævar Ólafs­son
  • Stefán Örvar Sig­munds­son
  • Rann­veig Ernu­dóttir
  • Olga Mar­grét Cilia
  • Oktavía Hrund Jóns
  • Magnús Davíð Norð­dahl
  • Krist­ján Thors
  • Krist­inn Jón Ólafs­son
  • Kjartan Jóns­son
  • Jón Arnar Magn­ús­son
  • Hug­inn Þór Jóhanns­son
  • Har­aldur Tristan Gunn­ars­son
  • Hall­dor Emil­i­u­son
  • Eyþór Möller Árna­son
  • Elsa Nore
  • Elísa­bet Guð­rún­ar- og Jóns­dóttir
  • Dóra Björt Guð­jóns­dóttir
  • Atli Stefán Yngva­son
  • Alex­andra Ford

Fréttin hefur verið upp­færð..

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent