Helmingur fanga hefur áður afplánað, flestir sitja inni vegna fíkniefna

kokain.jpg
Auglýsing

Um helm­ingur þeirra sem afplána dóma í íslenskum fang­elsum hafa setið inni áður. Íslend­ingar eru í miklum meiri­hluta í fang­els­un­um, eða 91 pró­sent vist­manna. Flestir sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, kyn­ferð­is­glæpi eða ofbeld­is­brot. Þetta kemur fram í svari Fang­els­is­mála­stofn­unar rík­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mála­flokk­inn. Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um hann und­an­farna daga.

Lang­flestir eru Íslend­ingar



Þótt 139 fangar sitji í fang­elsum rík­is­ins eru alls 180 dóm­þolar í afplánun vegna óskil­orðs­bund­inna dóma. Það þýðir að 41 afplánar utan fang­els­is. Af þessum hópi hafa 89 áður verið í afplán­un, eða 49,44 pró­sent. Af þeim sem eru í afplánun eru 164 Íslend­ingar og 86 þeirra, eða 52,44 pró­sent, hafa verið áður í afplán­un. Íslend­ingar eru því lík­legri en erlendir fangar að hafa setið áður inni.

Flestir þeirra 139 fanga sem afplána í íslenskum fang­elsum í dag sitja inni fyrir fíkni­efna­brot, eða 42 tals­ins. Næst­flestir sitja inni fyrir kyn­ferð­is­brot, eða 25 tals­ins, og 22 fangar sitja inni fyrir ofbeld­is­brot. Jafn­margir fangar sitja inni fyrir mann­d­ráð og þjófn­að/skjala­fals/fjársvik, eða 17 tals­ins.

Þegar horft er á alla fanga í afplán­un, líka þá sem afplána utan fang­elsa, eru 55 að afplána vegna fíkni­efna­brota, 31 fyrir kyn­ferð­is­brot og jafn margir vegna ofbeld­is­brota. Eng­inn sem afplánar vegna mann­dráps gerir það utan fang­elsa.

Auglýsing

Mun fleiri undir raf­rænu eft­ir­liti



Mikið hefur verið rætt um önnur úrræði til að fram­fylgja fulln­ustu refs­inga. Árið 2012, nánar til­tekið í febr­úar það ár, hóf  Fang­els­is­mála­stofnun raf­rænt eft­ir­lit með hluta þeirra sem eru í afplán­un. Þeir eru þá hluti af sam­fé­lag­inu á meðan að þeir afplána, en ganga með sér­stakan raf­rænan búnað á sér sem segir til um stað­setn­ingu þeirra.  Á fyrsta ári raf­ræns eft­ir­lits voru 5,4 dóm­þolar undir slíku. Í fyrra var með­al­talið 5,9 og það sem af er þessu ári er það rétt rúm­lega átta. Því er ljóst að notkun á úrræð­inu er að aukast mik­ið.

Tæp­lega ell­efu pró­sent þeirra sem afplána í íslenskum fang­elsum eru erlendir rík­is­borg­ar­ar. Þeir eru 15 tals­ins, en einn slíkur afplánar auk þess utan fang­els­is. Til við­bótar sitja fjórir erlendir rík­is­borg­arar í gæslu­varð­haldi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None