Hillary Clinton hafði Bernie Sanders undir

h_52305350.jpg
Auglýsing

Hill­ary Rod­ham Clint­on, vin­sæl­asti for­seta­fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins í Banda­ríkj­unum sam­kvæmt skoð­ana­könn­un­um, þótti standa sig best fram­bjóð­enda í fyrstu kapp­ræðnum milli for­seta­efna flokks­ins í gær. Fimm fram­bjóð­endur voru á sviði CNN sjón­varps­stöðv­ar­innar og beind­ist athyglin einkum að Clinton og vinstri mann­inum Bernie Sand­ers, sem hefur víða mælst með mikið fylgi í skoð­ana­könn­un­um.

Frétt­ir ­banda­rískra fjöl­miðla um kapp­ræður gær­kvölds­ins hafa sömu sögu að segja: Clinton stóð sig best fram­bjóð­enda og náði að koma höggi á helsta keppi­naut sinn, Sand­ers. Frétta­mið­ill­inn Vox segir að Clinton hafi þaggað niður gagn­rýn­is­raddir og hafi sýnt þá hlið sem stuðn­ings­menn biðu eft­ir. Frétta­mið­ill­inn Quartz segir Hill­ary hafa sigrað keppi­nauta sína auð­veld­lega og spyr í umfjöllun sinni hvort Sand­ers vilji raun­veru­lega bjóða sig fram fyrir Demókrata eða hvort hann vilji ein­fald­lega koma stefnu­málum sínum á fram­færi. Þá skrifar Nate Sil­ver, rit­stjóri frétta­síð­unnar FiveT­hir­tyEight, að fjöl­miðlar hafi van­met­ið ­kosn­inga­bar­áttu Clinton til þessa. Honum þykir þá að frammi­staða hennar í gær sé öllu ofmet­in. Frétta­skýrendur FiveT­hir­tyEight gáfu Clinton engu að síður ein­kunn­ina A- fyrir frammi­stöðu sína í gær en Bernie Sand­ers fékk B. Aðr­ir, þ.e. Martin O'M­al­ley, Jim Webb og Lincoln Chafee, þóttu standa sig mun verr.

Í umfjöllun New York Times um kapp­ræð­urnar segir að Clinton hafi með ágengum hætti velt upp spurn­ingum um gildi Sand­ers, skoð­anir hans og afstöðu sem þing­maður. Hún sak­aði hann ­meðal ann­ars um veika stefnu í málum er varða byssu­lög­gjöf Banda­ríkj­anna. Árið 2005 kaus Sand­ers með frum­varpi sem veitti byssu­fram­leið­endum frið­helgi fyrir lög­sóknum gegn fórn­ar­lömbum skotárása. Sér til varnar sagði Sand­ers málið hafa verið flókn­ara en svo.

Auglýsing

Sand­ers seg­ist vera demókrat­ískur sós­í­alisti, hann er á vinstri væng banda­ríska stjórn­mála­rófs­ins og talar fyrir sterku vel­ferð­ar­kerfi, háum sköttum og að komið verði í veg fyrir auð­söfn­un. Sand­ers hefur í þessum efnum mært nor­rænna mód­elið og minnt­ist í gær sér­stak­lega á það hvernig málum er háttað í Dan­mörku og Sví­þjóð. Þegar rætt var um kap­ít­al­isma og sós­í­al­isma í kapp­ræð­unum í gær sagði Clint­on: „En veistu hvað? Við erum ekki Dan­mörk. Ég elska Dan­mörku. Við erum Banda­ríki Norð­ur­-Am­er­ík­u.“ Brotið má sjá hér að neð­an.



Kom­inn með nóg af tölvu­póst­s­mál­inu

Það mál sem helst hefur reynst Clinton erfitt í kosn­inga­bar­átt­unni til þessa er hið svo­kall­aða „tölvu­póst­s­mál“ en upp komst að hún not­aði einka­net­fang sitt þegar hún var inn­an­rík­is­ráð­herra á árunum 2009 til 2013. Málið hefur fengið mikla athygli í fjöl­miðlum og póli­tískir and­stæð­ingar hafa nýtt sér það óspart. Þegar spurt var um tölvu­póstana í gær fór þó Sand­ers aðra leið en ýmsir aðrir hefðu gert og sagði kjós­endur komna með nóg af mál­inu. Meira lægi á að ræða mik­il­væg mál­efni eins og fátækt og ójöfn­uð. 





Bernie Sand­ers: "En­ough of the emails!"Bernie Sand­ers just said what we were all think­ing about Hill­ary Clint­on's email controver­sy. #Dem­Debate

Posted by Quartz on Tues­day, 13 Oct­o­ber 2015







Hér að neðan má sjá nokkrar færslur af sam­fé­lags­miðl­unum sem birt­ust á meðan kapp­ræð­urnar stóðu yfir í gær­kvöldi.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None