Hlutabréfaeign almennings hefur fjórfaldast frá 2019

Fjöldi einstaklinga sem eiga hlutabréf er nú fjórum sinnum meiri en hann var í árslok 2019. Hins vegar er hann enn langt frá því að vera sá sami og hann var á árunum fyrir hrun.

Kauphöll
Auglýsing

Um það bil 32 þús­und ein­stak­lingar áttu skráð hluta­bréf á Nas­daq Iceland fyrir viku síð­an, eða um 9 pró­sent af heildar­í­búa­fjölda Íslands. Í lok árs 2019 áttu ein­ungis 8 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf og hafði því þátt­taka almenn­ings á hluta­bréfa­mark­aði fjór­fald­ast á innan við tveimur árum.

Þetta kemur fram í Face­book-­færslu Nas­daq Iceland sem birt var í gær. Taln­ingin á fjölda ein­stak­linga sem eiga hluta­bréf var gerð þann 23. júní, en síðan þá hafa tvö hluta­fjár­út­boð átt sér stað í Kaup­höll­inni, ann­ars vegar í flug­fé­lag­inu PLAY og hins vegar í tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­inu Solid Clouds. Nas­daq Iceland sagði í færslu sinni að áhuga­vert yrði að sjá hvað ger­ist í kjöl­far þess­ara útboða.

Við­búið að fyr­ir­tækjum muni fjölga á næst­unni

Egg­ert Aðal­steins­son, sér­fræð­ingur hjá Kviku eign­ar­stýr­ingu, skrif­aði um hluta­bréfa­mark­að­inn hér á landi í tíma­rit­inu Vís­bend­ingu fyrr í mán­uð­in­um. Þar sagði hann að það myndi ekki koma á óvart ef skráð félög, sem verða 25 tals­ins þegar PLAY og Solid Clouds verða opnuð fyrir við­skipti, muni verða meira en 30 fyrir lok árs. Þó segir hann að langt sé í land að ná þeim fjölda skráðra fyr­ir­tækja sem sást í kringum síð­ustu alda­mót, en þá voru þau flest 75 tals­ins.

Auglýsing

Fjölg­aði um 11 þús­und á síð­ustu vikum

Egg­ert sagði einnig að góð ávöxtun á hluta­bréfa­mark­aði und­an­farna mán­uði hafi vafa­laust aukið áhuga og traust fjár­festa á skráðum hluta­bréf­um. Í byrjun mán­að­ar­ins, fyrir hluta­fjár­út­boð Íslands­banka, áttu 21 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf, sam­kvæmt við­tali Magn­úsar Harð­ar­son­ar, for­stjóra Kaup­hall­ar­innar í Dag­málum á Morg­un­blað­inu. Því hefur ein­stak­lingum sem eiga hluta­bréf fjölgað um 11 þús­und á einum mán­uði.

Tölu­vert minna en fyrir hrun

Hins vegar er hluta­bréfa­eign almenn­ings enn langt frá því að vera svipuð og hún var á árunum fyrir hrun. Sam­kvæmt færslu Nas­daq Iceland áttu vel yfir 50 þús­und ein­stak­lingar hluta­bréf á árunum 2006 og 2007, en sá fjöldi hafði svo minnkað niður í 40 þús­und árið 2008. Á árunum 2010-2019 var svo fjöldi ein­stak­linga sem áttu hluta­bréf undir tíu þús­und.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent