Virði hlutabréfa í Eimskip hefur aukist um 17 milljarða króna á undir tveimur vikum

Frá þeim degi sem tilkynnt var um sátt Eimskips við Samkeppniseftirlitið, þar sem félagið samþykkti að greiða metsekt fyrir samkeppnislagabrot, hafa hlutabréf í félaginu hækkað um þriðjung.

Eimskip
Auglýsing

Virði bréfa í Eim­skip hefur auk­ist um rúm­lega 33 pró­sent á innan við tveimur vik­um, eða frá 16. júní. Þann dag var greint frá því að Eim­skip hefði gert sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið um greiðslu 1,5 millj­arða króna stjórn­valds­sektar vegna alvar­legra brota gegn sam­keppn­is­lögum og EES-­samn­ingum sem framin voru í sam­ráði við Sam­skip, aðal­lega á árunum 2008 til 2013.

Sama dag og til­kynnt var um sátt­ina upp­færði Eim­skip afkomu­spá sína. Í  til­kynn­ingu til Kaup­hallar Íslands á þeim tíma sagði að sam­kvæmt stjórn­enda­upp­gjöri fyrir apríl og maí, ásamt áætlun fyrir júní, liti út fyrir að „EBITDA af rekstri á öðrum árs­fjórð­ungi 2021 verði umtals­vert betri en afkoma sama árs­fjórð­ungs síð­asta árs og jafn­framt betri en áætl­anir gerðu ráð fyr­ir. Hins vegar hefur nýgerð sátt við Sam­keppn­is­eft­ir­litið sem til­kynnt var um fyrr í dag nei­kvæð áhrif á afkom­una.“

Auglýsing
Frá ára­mótum og fram til 16. júní hækk­uðu bréf í Eim­skip um ell­efu pró­sent.

Mark­aðsvirði Eim­skips er nú um 67 millj­arðar króna en var um 50 millj­arðar króna um miðjan þennan mán­uð. Mark­aðsvirðið hefur því auk­ist um 17 millj­arða króna á tólf dög­um. 

Ætla að vinna gegn frek­ari brotum

Með sátt­inni sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið við­ur­kenndi Eim­skip einnig að hafa við­haft ólög­mætt sam­ráð við Sam­skip áður en stór­tækara sam­ráð á milli fyr­ir­tækj­anna tveggja hófst sum­arið 2008.

Að auki við­ur­kenndi Eim­skip að hafa brotið gegn sam­keppn­is­lögum með því að hafa ekki veitt nauð­syn­legar eða réttar upp­lýs­ingar eða afhent gögn í þágu rann­sóknar máls­ins, en félagið hefur á fyrri stigum rann­sóknar máls­ins neitað því að hafa gerst brot­legt við lög.

Í sátt­inni fólst að Eim­skip skuld­batt sig til að grípa til aðgerða til að vinna gegn frek­ari brotum og efla sam­keppni.

Brot félag­anna tveggja gegn sam­keppn­is­lögum hafa verið til rann­sóknar árum sam­an, en Sam­keppn­is­eft­ir­litið sagði fyrr í þessum mán­uði frá því að Eim­skip hefði leitað eftir sáttum í mál­inu. Tekið var fram í til­kynn­ingu frá Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu að Sam­skip sé enn til rann­sóknar vegna þess­ara mála. 

Langstærsti eig­and­inn á hlut upp á 20 millj­arða

Langstærsti ein­staki eig­andi Eim­skips er Sam­herji Hold­ing ehf., sem heldur á 29,39 pró­sent eign­ar­hlut. Sá hlutur er nú met­inn á 19,7 millj­arða króna og hefur hækkað um fimm millj­arða króna í virði frá 16. júní. Félagið keypti upp­haf­lega 25,3 pró­sent hlut í Eim­skip á ell­efu millj­arða króna fyrir tæpum þremur árum síð­an.

Bald­vin Þor­steins­son, sem stýrir erlendri starf­semi Sam­herja, er stjórn­ar­for­maður Eim­skips. Vil­helm Már Þor­steins­son, frændi stjórn­ar­for­manns­ins og tveggja helstu eig­enda Sam­herja Hold­ing, er for­stjóri félags­ins. 

Sam­herji Hold­ing er sá hluti sam­stæðu Sam­herja sem heldur utan um erlendan hluta henn­ar. Félagið er á meðal þeirra sem eru til rann­sóknar hjá emb­ættum hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra um þessar mundir vegna gruns um mútu­greiðsl­ur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Þær rann­sóknir hófust í kjöl­far þess að Sam­herj­a­málið svo­kall­aða var opin­berað í nóv­em­ber 2019. 

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja, Helga S. Guð­munds­dótt­ir, fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, og Krist­ján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri Sam­herja, eru að uppi­stöðu stærstu eig­endur Sam­herja Hold­ing. 

Félagið hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árin 2019 né 2020. Það skil­aði síð­ast árs­reikn­ingi fyrir árið 2018 í lok ágúst­mán­aðar 2019 og því hefur Sam­herji Hold­ing ekki skilað inn árs­reikn­ingi líkt og lög gera ráð fyrir síðan að Sam­herj­a­málið kom upp. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent