Hlutfall íbúða á höfuðborgarsvæðinu sem fór yfir ásettu verði aldrei verið hærra

Sölutími íbúða er nú með því lægsta sem mælst hefur og húsnæðisverð hefur hækkað um 15,5 prósent á einu ári. Aldrei áður hefur jafn hátt hlutfall íbúða selst yfir ásettu verði.

Fjöldi þeirra íbúða sem er til sölu er með því minnsta sem mælst hefur.
Fjöldi þeirra íbúða sem er til sölu er með því minnsta sem mælst hefur.
Auglýsing

Í sept­em­ber seld­ust 40,7 pró­sent allra íbúða sem seldar voru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu yfir ásettu verði. Það hlut­fall hefur aldrei verið hærra. Sér­býli voru aðeins lík­legri til að selj­ast yfir ásettu verði en fjöl­býli en það skeik­aði þó ekki miklu. Íbúðir á lands­byggð­inni fara mun sjaldnar yfir ásettu verði en þær sem seldar eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ódýr­ustu íbúð­irn­ar, sem selj­ast undir 35 millj­ónum króna, seld­ust sjaldnar yfir ásettu verði en aðrar íbúð­ir.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri mán­að­ar­skýrslu Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í morg­un. 

Fátt bendir til þess að ástand­inu sé að ljúka

Mikil eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur er eftir hús­næði og fram­boð hefur á sama tíma dreg­ist sam­an. Margt skýrir það. Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á jókst sparn­aður lands­manna þar sem þeir eyddu minna í aðra hluta eins og ferða­lög erlendis og ýmis konar afþr­ey­ingu, ein­fald­lega vegna þess að það var ekki hægt. Sam­hliða gengu í gildi launa­hækk­anir og stjórn­völd og Seðla­bank­inn gripu til marg­hátt­aðra aðgerða til að örva efna­hags­líf­ið. Meðal þeirra var að afnema sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem lagð­ist á eigið fé banka til að auka útlána­getu þeirra og að lækka stýri­vexti niður í áður óséðar lægð­ir, eða 0,75 pró­sent. 

Auglýsing
Vegna þessa urðu þing­lýstir kaup­samn­ingar í fyrra 14 pró­sent fleiri en árið áður og næst flestu sem gerðir hafa verið innan árs í Íslands­sög­unni. Ein­ungis bólu­árið 2007 var umfangs­meira í gerð kaup­samn­inga. Allt þetta ýtt íbúð­ar­verði hratt  upp. 

Þessi þróun hefur haldið áfram í ár og tólf mán­aða hækkun íbúða­verðs á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 15,5 pró­sent í sept­em­ber og hækk­aði úr 14,8 pró­sent í ágúst. Mest mæld­ist tólf mán­aða hækk­unin á Suð­ur­nesjum eða 21,7 pró­sent og þar á eftir á Vest­fjörð­um, 18 pró­sent. Sam­kvæmt grein­ingu HMS hefur fast­eigna­verð hefur hins vegar hækkað lang­minnst á Norð­aust­ur­landi, eða um tvö pró­sent, á síð­ustu 12 mán­uð­um.

Fátt virð­ist benda til að þessu ástandi sé að ljúka, en gerðum kaup­samn­ingum fjölg­aði milli mán­aða þrátt fyrir að Seðla­bank­inn hafi gripið til ýmissa aðgerða til að tak­marka útlán til íbúð­ar­kaupa og að vextir hafi hækkað nokkuð skarpt frá því í vor.

Sölu­tími íbúða með því lægsta í sög­unni

Þessi staða hefur leitt til þess að íbúðum sem eru til sölu hefur fækkað mik­ið. Í grein­ingu HMS segir að aðeins um 1.320 íbúðir séu til sölu á land­inu öllu nú en til sam­an­burðar voru þær yfir 1.400 í byrjun sept­em­ber­mán­aðar og nærri 4.000 þegar mest var í lok maí 2020. 

­Sam­hliða hefur sölu­tími íbúða dreg­ist veru­lega saman og er nú með því lægsta sem nokkru sinni hefur mælst.

Á höf­uð­borg­ar­svæð­inu  var með­al­sölu­tími í sept­em­ber aðeins 38,7 dagar sem er nokkuð nálægt því lægsta sem mælst hefur og á lands­byggð­inni var með­als­tölu­tím­inn um 60,1 dag­ur, sem er met sam­kvæmt HMS.

Í mán­að­ar­skýrslu HMS seg­ir: „Oft er kauptil­boð sam­þykkt á mun skemmri tíma en með fyr­ir­vara um fjár­mögn­un. Fjár­mögnun getur tekið tíma, sér­stak­lega ef kaup­andi þarf að selja íbúð sem hann á fyrir til þess að fjár­magna kaup­in. Þannig geta jafn­vel mynd­ast sölu­keðjur þar sem hver og ein íbúð þarf að selj­ast til þess að keðjan gangi upp. Því má segja að sölu­tím­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu verði vart skemmri en hann mælist um þessar mund­ir.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent