HMS segir ekki hægt að fullyrða að hátt verð sé vegna framboðsskorts

Seðlabankastjóri sagði í gær að mikil hækkun fasteignaverðs væri að einhverju leyti undirbyggð á skorti á framboði. Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er þó ekki hægt að fullyrða það.

Mikið hefur verið byggt af nýju húsnæði á síðustu tveimur árum, að mati HMS.
Mikið hefur verið byggt af nýju húsnæði á síðustu tveimur árum, að mati HMS.
Auglýsing

Sam­kvæmt Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun er ekki hægt að full­yrða að núver­andi staða á hús­næð­is­mark­aði hafi komið til vegna skorts á fram­boði af nýjum íbúð­um. Fyrst og fremst megi rekja hana til auk­innar eft­ir­spurn­ar, en vís­bend­ingar séu einnig um að lóða­skortur gæti staðið í vegi fyrir áfram­hald­andi upp­bygg­ingu.

Þetta kemur fram í kynn­ingu stofn­un­ar­innar fyrir Þjóð­hags­ráð um stöð­una á hús­næð­is­mark­aði frá því fyrr í mán­uð­in­um. Sam­kvæmt henni hefur fram­boð íbúða verið umfram spár á síð­ustu árum og óupp­fyllt íbúða­þörf hefur minnk­að. Sér­stak­lega hafi verið mikið byggt af íbúðum á síð­ustu tveimur árum og því vill HMS ekki full­yrða að verð­hækk­anir séu vegna fram­boðs­skorts.

Ásgeir Jóns­son seðla­banka­stjóri, sem á sæti í Þjóð­hags­ráði ásamt full­trúum stétt­ar­fé­laga og Sam­tökum atvinnu­lífs­ins, hélt því hins vegar fram á vaxta­á­kvörð­un­ar­fundi í gær að mikil hækkun fast­eigna­verðs sé að ein­hverju leyti und­ir­byggð á skorti á fram­boði.

Auglýsing

Seðla­banka­stjóri nefndi þó einnig að að nýleg hækkun hús­næð­is­verðs væri að hluta til drifin áfram af vaxta­lækk­unum sem bank­inn þurfti að ráð­ast í til að bregð­ast við efna­hags­á­fall­inu sem fylgdi heims­far­aldr­inum í fyrra. Að mati HMS eru þessar vaxta­lækk­anir og eft­ir­spurn­ar­aukn­ingin sem þeim fylgdi meg­in­or­sök núver­andi stöðu á hús­næð­is­mark­aði, en sam­kvæmt stofn­un­inni var erfitt að sjá þær fyrir og bregð­ast við eft­ir­spurn­inni í tæka tíð.

HMS minnt­ist líka á lóða­skort í skýrsl­unni sinni, en sagði að vís­bend­ingar væru uppi um að skort­ur­inn gæti staðið í vegi fyrir áfram­hald­andi og stöðugri upp­bygg­ingu. Sömu­leiðis sagði Ásgeir að sú ákvörðun að Reykja­vík eða önnur sveit­ar­fé­lög hafi ekki reist nýjar íbúða­byggðir á nýju landi á síð­ari árum hafa mikil áhrif á hús­næð­is­verð­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent