Höfuðborgarbúar færa sig til Suðurlands og Suðurnesja

Enn flytja mun fleiri til Reykjavíkur heldur en frá henni, en á síðustu árum hefur sá aðflutningur einungis verið erlendis frá. Þeir sem búsettir eru innanlands hafa aftur á móti fært sig frá höfuðborginni og að nærliggjandi landshlutum.

Suðurlandið, ásamt Suðurnesjum, virðist heilla marga höfuðborgarbúa.
Suðurlandið, ásamt Suðurnesjum, virðist heilla marga höfuðborgarbúa.
Auglýsing

Íbúum Suð­ur­lands og Suð­ur­nesja hefur fjölgað um alls 2.300 manns á síð­ustu fimm árum vegna aðflutn­ings fólks úr öðrum lands­hlut­um. Á sama tíma hafa rúm­lega þús­und fleiri íbúar flutt frá höf­uð­borg­inni og á lands­byggð­ina heldur en frá lands­byggð­inni til höf­uð­borg­ar­inn­ar. Þetta kemur fram í fólks­flutn­ings­tölum Hag­stofu, sem birtar voru í síð­ustu viku.

Fjölgar í öllum lands­hlutum

Sam­kvæmt töl­unum hefur íbúum fjölgað í öllum lands­hlutum vegna aðflutn­ings á tíma­bil­inu 2017-2021. Mest hefur nettó aðflutn­ing­ur­inn verið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en þar eru aðfluttir rúm­lega 16 þús­undum fleiri heldur en brott­flutt­ir.

Sömu­leiðis hefur aðfluttum fjölgað mikið á Suð­ur­landi og á Suð­ur­nesjum, en í hvorum lands­hluta fyrir sig voru þeir fjórum þús­undum fleiri en brott­flutt­ir. Í hinum lands­hlut­unum var nettó aðflutn­ingur fólks undir þús­und manns.

Auglýsing

Nær allur þessur aðflutn­ingur kemur erlendis frá, en á tíma­bil­inu 2017-2021 fjölg­aði aðfluttum um rúm 27 þús­undum umfram brott­fluttra. 64 pró­sent þeirra sett­ust að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en 12 pró­sent þeirra sett­ust að á Suð­ur­nesjum og önnur 10 pró­sent þeirra fluttu á Suð­ur­land­ið. Fæstir þeirra, eða um 1,3 pró­sent af heild­ar­fjölda nettó aðfluttra, sett­ust að á Norð­ur­landi Eystra.

Höf­uð­borgin ekki vin­sæl hjá íbúum lands­byggðar

Ef litið er fram­hjá aðflutn­ingi þeirra sem koma erlendis frá sést að höf­uð­borg­ar­svæðið hefur orðið minna ákjós­an­legur staður til að búa á í augum íbúa ann­arra sveit­ar­fé­laga. Líkt og myndin hér að neðan sýnir fluttu rúm­lega þús­und fleiri úr höf­uð­borg­inni á lands­byggð­ina heldur en öfugt.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa.

Á sama tíma fluttu tæp­lega 1.500 fleiri íbúar á Suð­ur­landið heldur en frá því, en nettó aðflutn­ingur íbúa hér­lendis á Suð­ur­nesin var tæp­lega helm­ingi minni. Í öllum hinum lands­hlutum var nettó aðflutn­ing­ur­inn nei­kvæð­ur.

Myndin hér að neðan sýnir mis­mun þeirra sem fluttu frá lands­byggð­inni á höf­uð­borg­ar­svæðið og þeirra sem fluttu frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu á lands­byggð­ina. Líkt og sést hefur nettó aðflutn­ingur inn­an­lands lengst af verið jákvæður í höf­uð­borg­inni, þannig að hluti af fólks­fjölgun hennar hefur verið vegna aðflutn­ings fólks sem bjó áður í öðrum lands­hlut­um.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Fyrir tólf árum síðan byrj­aði svo að hægja á þess­ari þró­un, en árið 2017 var svo að minnsta kosti 30 ára met slegið í nettó brott­flutn­ingi, þegar 427 fleiri íbúar fóru frá borg­inni og til ann­arra lands­hluta heldur en öfugt. Þetta met var svo slegið aftur í fyrra, en þá nam nettó brott­flutn­ingur íbúa hér­lendis úr borg­inni 640 manns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent