„Höfum við verið með andlýðræðislega stjórnarskrá síðan 1874?“

15083807359-235edeed79-z.jpg
Auglýsing

Það er ekki and­lýð­ræði­legt að halda kosn­ingar til emb­ættis for­seta og um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á sama tíma, segir Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði. „Höfum við verið með and­lýð­ræð­is­lega stjórn­ar­skrá síðan 1874?“ spyr hann í  Morg­un­blað­inu í dag.

Ólafur Ragnar Gríms­son, for­seti Íslands, sagði við þing­setn­ingu Alþingis í vik­unni að það væri „and­stætt lýð­ræð­is­legu eðli beggja verk­efn­anna“ að kjósa um þau á sama tíma, og teng­ing þeirra væri „jafn­vel and­lýð­ræð­is­leg í eðli sín­u.“ Þá hefðu Íslend­ingar vel efni á því að halda tvennar kosn­ing­ar.

„Ég get ekki séð að það sé and­lýð­ræð­is­legt að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sam­fara for­seta­kosn­ingum eða þing­kosn­ing­um. Í mörgum fylkjum Banda­ríkj­anna eru haldnar þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur sam­hliða þing- og for­seta­kosn­ingum og þar er öll full­trúa­deild og hluti öld­unga­deildar kjörin á sama degi og for­set­inn. Í Sví­þjóð hefur verið kosið til sveit­ar­stjórna um leið og kosið er til þings. Frá fyrstu íslensku stjórn­ar­skránni 1874 til allra síð­ustu ára var bara ein leið til að breyta íslenskri stjórn­ar­skrá: þing sam­þykkti breyt­ingu, síðan voru alþing­is­kosn­ing­ar, og svo þurfti nýtt þing að sam­þykkja sama stjórn­ar­skrár­frum­varp óbreytt. Í seinni kosn­ing­unum voru kjós­endur sem sé bæði að kjósa þing­menn til fjög­urra eða sex ára – og kjósa um stjórn­ar­skrár­breyt­ing­ar. Fleiri lönd hafa haft þennan hátt­inn á,“ segir Ólafur Þ. í dag.

Auglýsing

Ólafur segir að deila megi um kosti og galla fyr­ir­komu­lags­ins. „Kost­ur­inn er sá helst­ur, að þetta fyr­ir­komu­lag er aukin þjón­usta við kjós­end­ur: gerir þeim auð­veld­ara fyrir að kjós­a.“ Reynsla sýni að margar kosn­ingar hafi til­hneig­ingu til að draga úr kjör­sókn. Kostn­aður við fáar kosn­ingar sé minni en við marg­ar, en það séu tæp­lega gild rök. Gall­inn sé helst að kjós­endur þurfi að hugsa um fleiri en eitt mál.

„Auð­vitað má líka segja, að sum­part sé óheppi­legt að gera miklar breyt­ingar á emb­ætti for­seta í stjórn­ar­skrá um leið og for­seti er kos­inn. En Íslend­ingar hafa margoft breytt stjórn­ar­skrár­á­kvæðum um alþing­is­kosn­ingar um leið og nýtt alþingi var kos­ið. Og til eru þeir, sem segja að gamla stjórn­ar­skráin hafi reynst vel – þó senni­lega séu þeir miklu fleiri sem vilja breyta henn­i.“

Telur í raun allar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar óþarfar



Guðni Th. Jóhann­es­son, dós­ent í sagn­fræði, tjáir sig einnig um málið við Morg­un­blað­ið. „Manni sýn­ist helst að for­seti telji í raun allar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá óþarf­ar. Það væri í sam­ræmi við fyrri orð hans þegar hann lýsti stjórn­ar­skránni frá 1944 sem listi­legri smíð, án hnökra svo nokkru næmi.“

Guðni segir að það sem þjóð­höfð­ing­inn segi, þó ekki berum orð­um, sé að ef breyta eigi stjórn­ar­skránni í veiga­miklum atriðum verði að gera það áður en for­seti er kjör­inn svo að bæði for­seta­efnin og kjós­endur viti hvernig stjórn­skip­unin verði þegar skipt er um for­seta. „En hvað þýðir þetta? Taki nýr for­seti við á næsta ári hljóta kjós­endur að hafa í huga að vel megi vera að stjórn­ar­skrá verði breytt veru­lega í emb­ætt­is­tíð hennar eða hans.“

Guðni segir svo annað umhugs­un­ar­efni að sam­kvæmt núver­andi stjórn­ar­skrá láti for­set­inn ráð­herra fram­kvæma vald sitt, „eins kjána­lega og það hljómar nú í raun­veru­leika sam­tím­ans, og þessir sömu ráð­herrar hafa lýst yfir áhuga á því að kosn­ingar um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá fari fram sam­hliða for­seta­kosn­ing­um. Það væri því áhuga­vert að heyra sjón­ar­mið þeirra frekar en sagn­fræð­ings­ins í þessum efn­um,“ segir Guðni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None