„Frábært útspil Seðlabankans í miðjum kjarasamningsviðræðum á almennum markaði. Húrra fyrir þér!“
Þetta skrifar Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, í leiðara í nýjasta tölublaði Tímarits Sameykis, um ítrekaðar stýrivaxtahækkanir Seðlabankans undanfarna mánuði. Þórarinn gagnrýnir ríkisstjórnina og seðlabankastjóra harðlega og segir þau stunda „hókuspókushagstjórn“ sem bitni verst á almennu launafólki. Stýrivaxtahækkanir komi verst niður á ungum barnafjölskyldum og láglauna- og millitekjufólki sem er að reyna að koma sér upp heimili og byggja bjarta framtíð.
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu varð til við sameiningu Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og SFR stéttarfélags í almannaþjónustu þann 26. janúar 2019. Félagið þjónar rúmlega 12 þúsund félagsmönnum um land allt.
„Fólkið í fílabeinsturninum hefur engan áhuga á högum almennings og heldur því fram í sínum bergmálshelli að þjóðin liggi afvelta undan ströndum Afríku takandi tásumyndir af sér á snjallsímana sína,“ skrifar Þórarinn og vísar þar til umdeildra ummæla seðlabankastjóra. „Þetta segir Ásgeir Jónsson að sé raunveruleikinn hjá þjóðinni og það stjórni stýrivaxtahækkunum hans með góðfúslegu samþykki Katrínar & Co.“
Erfið staða hjá einstæðum foreldrum
Matvöruverð og húsnæðislán hækki stöðugt og rekstur heimila rjúki upp. Laun dugi ekki lengur til framfærslu.
Hann bendir á að fjórða hvert heimili í landinu, rúmlega 38 þúsund manns, áttu erfitt með að ná endum saman árið 2021 og að ástandið hafi svo versnað á þessu ári. Í þessum hópi séu m.a. yfir helmingur heimila einstæðra foreldra á Íslandi. Kjarasamningar eru að sigla í strand, skrifar Þórarinn, og stjórnvöld sem eiga að bera ábyrgð á ríkisfjármálum hendi þeirri ábyrgð á almenning. Á sama tíma séu tekjustofnar ríkisins vannýttir; bankaskattar, fjármagnstekjuskattar, auðlegðarskattar, hvalrekaskattar og hækkun auðlindagjalda.
„Ríkisstjórn íhalds og nýfrjálshyggju leggur til að rekstur samfélagsins, innviðanna, komi lóðbeint úr launaumslagi almennings á sama tíma og verðmætustu eignir okkar eru afhentar útvöldum. Það er vaðið áfram á móti þjóðarvilja og mjólkurkúnum slátrað. Íslandsbanki hagnaðist um rúma 30 milljarða 2020 og 2021. Þennan hagnað ætlar Bjarni Benediktsson að færa útvöldum til framtíðar. Húrra fyrir þér!“
Þórarinn segir „með miklum ólíkindum“ að stjórnvöld hagi sér „eins og þeim komi ekki við hvað er að gerast á vinnumarkaði“. Flestallir kjarasamningar séu að losna á næstu fjórum mánuðum og stærstu stéttarfélög landsins standi nú í viðkvæmum kjarasamningsviðræðum á almennum markaði.
„Ef núverandi stjórnvöld hefðu einhvern snefil af áhuga á að styrkja samfélag okkar á þessari stundu, myndu þau kynna metnaðarfullar aðgerðir til að vernda þá verst stöddu í samfélaginu, hugmyndir um stórtækar aðgerðir í húsnæðismálum, gagngerar breytingar á skattkerfinu og á tekjulíkani ríkis og sveitarfélaga, umpólun á auðlinda- og fiskeldisgjaldi, o.fl., o.fl.,“ skrifar Þórarinn. „En ríkisstjórnin hefur enga framtíðarsýn fyrir almenning í landinu. Hennar áhugi beinist að því að hlaða meira og hraðar undir ríka og fína fólkið og koma í veg fyrir þann óþverra að almenningur skuli mynda tærnar sínar á Tene.“