Höldum oft að aðrir séu sammála okkur

vinsmakkarar2.png
Auglýsing

Haukur Freyr Gylfa­son fram­kvæmdi rauð­vín­stil­raun í fimmta og næst síð­asta þætti Ferðar til fjár, sem var á dag­skrá á RÚV síð­ast­lið­inn fimmtu­dag. Hann fékk þátt­tak­endur til þess að smakka á nokkrum mis­mun­andi teg­undum af rauð­víni, velja sitt upp­á­halds vín og meta hvort öðrum þátt­tak­endum þætti sama vín það besta.

„Smekkur fólks er mis­mun­andi. En ein­hverra hluta vegna þá er algengt að við teljum aðra velja sama rauð­vín og við, þegar við veljum okkar upp­á­halds vín,“ sagði Haukur en hann er aðjúnkt við Háskól­ann í Reykja­vík og hefur sér­hæft sig í rann­sóknum tengdum fjár­mála­hegð­un.

Haukur Freyr Gylfason, aðjúnkt við HR. Haukur Freyr Gylfa­son, aðjúnkt við HR.

Auglýsing

Skekkjan sem vín­til­raunin sýnir fram á kall­ast sam­dóms­skekkja. Það er til­hneig­ing fólks til að ofmeta hversu vel álit ann­arra sam­ræmis eigin dómi. Þetta mat okkar má skýra með setn­ingu á við: „Þetta er mín skoð­ung og það hljóta allir að vera sam­mála mér.“ Við­horf sem þetta má gjarnan heyra í póli­tík, þar sem stjórn­mála­menn halda að all­ir, eða lang­flest­ir, séu sömu skoð­unar og þeir sjálf­ir.

Sam­dóms­skekkjan getur komið fram við fjár­fest­ingar og er þess stundum vald­andi að fólk er reiðu­búið að greiða hærra verð fyrir hlut­ina en ella.

Skál í boð­inu



En hvernig kemur skekkjan fram við vín­s­mökk­un? Í síð­asta þætti fengum við nokkra nem­endur við Háskól­ann í Reykja­vík til þess að smakka nokkur mis­mun­andi rauð­vín og velja það besta. Ef sam­dóms­skekkjan á sér stoð í raun­veru­leik­anum þá ættu flestir smakk­ar­anna að telja að aðrir séu sam­mála þeim um hvaða rauð­vín sé best.

Vínsmakkarar í fimmta þætti af Ferð til fjár.

Vínsmakkarar í fimmta þætti af Ferð til fjár.

Viti menn, skekkjan kom skýrt fram. Þrír af hverjum fjórum sögðu að aðrir myndu velja það sama og þeir völdu sem sitt upp­á­halds vín.

Hér að neðan má sjá stuttan fyr­ir­lestur Hauks þar sem hann fjallar nánar um sam­dóms­skekkj­una:

Kjarn­inn og Stofnun um fjár­mála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítar­lega um heim­il­is­fjár­mál sam­hliða þátt­unum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vik­ur. Mark­mið­ið: Að stuðla að betra fjár­mála­læsi hjá lands­mönn­um! Næsti þáttur er á dag­skrá fimmtu­dag­inn 19. febr­ú­ar. Fylgstu með á Face­book-­síðu Ferðar til fjár.

ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None