Hreinn Loftsson hættir sem aðstoðarmaður Áslaugar Örnu og ræður sig til Jóns

Jón Gunnarsson tók við sem innanríkisráðherra á sunnudag hefur ákveðið að ráða fyrrverandi aðstoðarmann forvera síns í starfi, Hrein Loftsson, sem aðstoðarmann sinn.

Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Hreinn Loftsson, lögmaður og annar aðstoðarmaður innanríkisráðherra.
Auglýsing

Hreinn Lofts­son, sem varð annar aðstoð­ar­manna Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur eftir að hún sett­ist í dóms­mála­ráðu­neytið árið 2019, mun halda áfram að starfa í því ráðu­neyti þrátt fyrir að Áslaug Arna sé komin ann­að. 

Á vef stjórn­ar­ráðs­ins í dag er greint frá því að Hreinn verði aðstoð­ar­maður Jóns Gunn­ars­son­ar, sem tók við emb­ætti inn­an­rík­is­ráð­herra, sem fer með dóms­mál, á sunnu­dag. 

Auglýsing
Hreinn lauk laga­­námi við Háskóla Íslands árið 1983 og öðl­að­ist rétt­indi til mál­­flutn­ings fyrir Hæsta­rétti árið 1993. Hann á að baki fjöl­breyttan feril í lög­­­mennsku, atvinn­u­lífi, stjórn­­­sýslu og sem aðstoð­­ar­­maður ráð­herra í nokkrum ráðu­­neytum frá árinu 1985 til 1992. Hann var meðal ann­ars aðstoð­ar­maður Dav­íðs Odds­sonar þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra og var for­maður fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu um nokk­urt skeið í kringum síð­ustu alda­mót. Hreinn gegndi einnig stjórn­ar­for­mennsku í fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Baugi um tíma og sat líka sem óbreyttur stjórn­ar­maður þar , en það fór í þrot eftir banka­hrun­ið. 

Í nóv­em­ber 2008 keypti Hreinn útgáfu­fé­lagið Birt­ing, sem átti á þeim tíma DV. Hann seldi sig síðar út úr útgáfu­starf­sem­inn­i. 

Frá 2014 og þangað til að hann tók við sem aðstoð­ar­maður Áslaugar Örnu starfað Hreinn sjálf­­stætt. Hreinn hefur setið í stjórnum fjöl­margra fyr­ir­tækja, nefnda og félaga, auk starfs á vett­vangi stjórn­­­mála.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent