Hlutabréf í kauphöllinni í Grikklandi hríðféllu í verði eftir að hún var opnuð í fyrsta sinn í fimm vikur í morgun. Hlutabréfavísitala kauphallarinnar í Aþenu hafði lækkað um tæplega 23 prósent skömmu eftir opnun í morgun. Hún hefur lítillega hækkað síðan en lækkun í dag er enn um 20 prósent. Hlutabréfavísitalan hefur ekki mælst jafn lág síðan um mitt ár 2012.
Þetta hrun er í takti við spár sérfræðinga sem töldu fullvíst að verð hlutabréfa myndi falla skarpt eftir opnunina, enda hefur kauphöllin verið lokuð frá því að Grikkir settu á fjármagnshöft og felldu björgunarpakka kröfuhafa sinna í þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun júlí. Síðan þá hefur verið samið um nýjan björgunarpakka sem felur í sér mikinn niðurskurð og aðlögun í ríkisfjármálum auk þess sem Grikkir hafa samþykkt að einkavæða tíu sinnum fleiri ríkiseignir en hafa verið einkavæddar hingað til.
Langt í land
Þrátt fyrir að Grikkir hafi samþykkt björgunarpakka kröfuhafa sinna þá ríkir enn gríðarleg óvissa í landinu. Forsætisráðherrann, Alexis Tsipras, er að glima við mikla andstöðu innan flokks síns, Syriza, vegna samkomulagsins, sem felur í sér mjög sársaukafullar niðurskurðar- og endurskipulagningaraðgerðir á grískum ríkisfjármálum og að gríska ríkið verður að einkavæða tíu sinnum fleiri ríkiseignir en Grikkir hafa einkavætt hingað til, samkvæmt Business Insider.
Síðastliðinn miðvikudag var stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins svo upplýst um það að sjóðurinn geti ekki tekið þátt í þriðju neyðarlánaveitingunni til Grikklands. Ástæðan er sú að skuldir Grikkja eru svo háar og þeir hafa ekki sýnt fram á það hingað til að þeir geti framfylgt áætlunum um umbætur.
Sjóðurinn mun taka þátt í viðræðum um neyðarlánapakkann, sem nú fara fram í Aþenu, en hann mun ekki ákveða hvort hann tekur þátt í nýjum aðgerðapakka fyrr en eftir einhverja mánuði og mögulega ekki fyrr en á næsta ári.