Húsnæðisátak meðal þess sem finna má í samstarfssáttmála nýs meirihluta

Samstarfssáttmáli nýs meirihluta í Reykjavík svarar kröfu Framsóknar um breytingar í borginni að öllu leyti að sögn oddvita flokksins. Húsnæðisátak er meðal þess sem finna má í sáttmálanum, sem er 33 síður.

Oddvitar flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn kynntu samstarfssáttmála flokkanna í Elliðaárdal í dag.
Oddvitar flokkanna fjögurra sem mynda nýjan meirihluta í borgarstjórn kynntu samstarfssáttmála flokkanna í Elliðaárdal í dag.
Auglýsing

Hús­næð­is­mál, sam­göngu­mál og lofts­lags­mál eru meðal helstu mála í sam­starfs­sátt­mála nýs meiri­hluta Fram­sókn­ar­flokks­ins, Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Við­reisnar sem kynntur var á blaða­manna­fundi odd­vita flokk­anna í Elliða­ár­dal í dag.

Í sátt­mál­an­um, sem er alls 33 blað­síð­ur, er fyrst fjallað um þau verk­efni sem falla undir fyrstu breyt­ing­ar.

Auglýsing

Meðal þeirra verk­efna er hús­næð­isá­tak og úthlutun lóða í Úlf­arsár­dal, Gufu­nesi, á Kjal­ar­nesi, Hlíð­ar­enda og Ártúns­höfða, auk sam­keppni um skipu­lag Keldna­lands og Keldna­holts.

Þá verður frí­stunda­styrkur hækk­aður í 75 þús­und krónur 1. jan­úar 2023 og börn á grunn­skóla­aldri frá ókeypis í sund og strætó. Einnig verður við­halds­á­tak sett í for­gang í leik-, grunn- og frí­stunda­hús­næði borg­ar­innar og verk­efnum flýtt eins og kostur er.

Meðal fyrstu verk­efna verður einnig að koma næt­ur­strætó aftur í umferð og gerð verður til­raun með að hafa eina sund­laug borg­ar­innar opna til mið­nætt­is.

Sátt­mál­inn svari kröfu Fram­sóknar um breyt­ingar að öllu leyti

„Ég er ákaf­lega ánægður með þennan sátt­mála. Hann svarar að öllu leyti kröfu Fram­sóknar um breyt­ingar í Reykja­vík á næsta kjör­tíma­bil­i,“ sagði Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins, í Reykja­vík, á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi nýs meiri­hluta í Elliða­ár­dal í dag.

Dóra Björt Guð­jóns­dótt­ir, odd­viti Pírata, sagði áherslur Pírata í sam­starfs­sátt­mál­anum end­ur­spegl­ast í lofts­lags­málum „sem er leið­ar­ljós í gegnum þennan sátt­mála“, auk „lýð­ræð­is, gagn­sæis og rétt­láts sam­fé­lags fyrir öll og alla hópa“. Umhverf­is- og lofts­lags­mál fara inn í Skipu­lags­ráð sem verður leitt af Dóru Björt.

Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir, odd­viti Við­reisn­ar, sagði að áhersla verði lögð á atvinnu- og nýsköp­un­ar­mál, auk lofts­lags­mála. Þór­dís Lóa verður for­seti borg­ar­stjórnar og þar mun sam­tal við atvinnu­lífið fara fram.

­Dagur Egg­erts­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, verður áfram borg­ar­stjóri út næsta ár þegar Einar tekur við. Dagur sagði mik­inn fersk­leika yfir nýja meiri­hlut­an­um. Að hans mati felst meiri­hluta­sam­starfið í að þróa sam­starfið áfram og í græna átt og að fram undan sé mesta upp­bygg­ing­ar­skeið í sögu borg­ar­inn­ar. „Ekki síst í hús­næð­is­málum en líka í sam­göngu­mál­um, borg­ar­línu, Sunda­braut og fleiri verk­efni sem við höfum náð saman um.“

Einar sagði kosn­inga­bar­átt­una hafa leitt í ljós kröfu um breyt­ingar í hús­næð­is- og sam­göngu­málum og ýmsum vel­ferð­ar­málum og segir hann flokk­ana hafa náð vel saman utan um þessi mál í meiri­hluta­við­ræð­un­um. Sam­starfs­sátt­mál­inn er að hans mati gott vega­nesti inn í næstu fjögur ár.

Fyrsti fundur nýrrar borg­ar­stjórnar á morgun

Mál­efna­samn­ing­ur­inn verður kynntur innan flokk­anna í kvöld. Fram­sókn­ar­flokkur hefur boðað til fundar innan borg­ar­mála­ráðs flokks­ins. Þá hefur full­trúa­ráð Sam­fylk­ing­ar­fé­lag­anna í Reykja­vík boðað til alls­herj­ar­fundar í hús­næði flokks­ins í Sól­túni. Reykja­vík­ur­ráð Við­reisnar hefur sömu­leiðis boðað til fundar og Píratar í Reykja­vík hafa einnig boðað til kynn­ing­ar­fund­ar.

Fyrsti borg­ar­stjórn­ar­fundur nýs meiri­hluta verður á morg­un, þriðju­dag, og hefst klukkan 14 þar sem verður meðal ann­ars kosið í ráð og nefndir innan borg­ar­stjórn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent