Hvað varð um fellibyljina?

Það saknar þeirra enginn en margir eru farnir að velta vöngum yfir hvað orðið hafi af þeim. Af hverju þeir séu ekki komnir á stjá, farnir að ógna mönnum og öðrum dýrum með eyðingar mætti sínum, líkt og þeir eru vanir á þessum árstíma.

Samsett mynd frá NOAA sem sýnir gervitunglamyndir af fellibyljunum sem geisuðu á Atlantshafi árið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri.
Samsett mynd frá NOAA sem sýnir gervitunglamyndir af fellibyljunum sem geisuðu á Atlantshafi árið 2020. Þeir hafa aldrei verið fleiri.
Auglýsing

„Margt sem vekur furðu í veðr­inu á þessu sum­ri,“ segir Einar Svein­björns­son veð­ur­fræð­ingur og rit­stjóri veð­ur­vefs­ins Blika.­is. Í færslu á Face­book-­síðu sinni bendir hann á að nú ætti felli­bylja­tíðin að vera að kom­ast „á fullt skrið“, bæði á Atl­ants­haf­inu og í Kyrra­haf­inu. „Ekki það að maður sé að óska þeirra sér­stak­lega,“ segir Ein­ar, „en til þessa hafa verið skráðir þrír hita­belt­is­stormar á Atl­ants­haf­inu, sá síð­asti snemma í júlí! Eng­inn þeirra náði styrk felli­byls.“ Sömu sögu sé að segja frá Kyrra­haf­inu.

„Á Atl­ants­haf­inu var spáð fleiri felli­byljum en í með­al­ári eða 6-10 af styrk felli­bylja og þar af 3 til 5 meiri­hátt­ar,“ segir Ein­ar. „En hvorki bólar á þeim, né umræðu á vefnum meðal þeirra sem best þekkja hverju veldur nú.“

Auglýsing

Einar er þó ekki eini veð­ur­fræð­ing­ur­inn sem er að velta þessu fyrir sér. Það gerir einnig veð­ur­fræð­ingur banda­ríska veð­ur­frétta­vefs­ins AccuWe­ather. Í frétt hans um málið segir að nú sé aðeins um vika eftir á þriggja mán­aða tíma­bili sem ein­kenn­ist oft­ast af mörgum felli­byljum í Atl­ants­hafi og líkt og Einar segir hefur enn eng­inn hita­belt­is­stormur náð því að verða að felli­byl.

Sjáv­ar­hit­inn hærri en venju­lega

Hita­belt­is­stormar eru knúnir af guf­un­ar­varma raka sem berst úr sjón­um. Til þess þarf yfir­borðs­hit­inn að ná til­teknu marki. Einar bendir í pistli sínum á að sjá megi á nýrri sjáv­ar­hita­grein­ingu að ekki er sjáv­ar­hit­anum um að kenna – hann er rauður (>28°C) á þessum þekktu felli­bylja­haf­svæð­um. Ein­hver önnur skýr­ing sé á því að felli­bylj­irnir hafi ekki látið sjá sig.

Adam Sadvary, veð­ur­fræð­ingur hjá AccuWe­ather, er með þá kenn­ingu að þurrt og rykugt loft frá Sahara-eyði­mörk­inni í Afr­íku sem og óvenju­legar vind­áttir eigi þátt í því að „felli­bylja­tíma­bilið hefur verið kyrr­látt það sem af er“.

Síð­ustu ár verið metár

Felli­bylja­tíma­bilið í Atl­ants­hafi nær yfir­leitt hámarki á fyrri hluta sept­em­ber­mán­að­ar. Þrír hita­belt­is­stormar urðu í júní og júlí en eng­inn enn sem komið er í ágúst. Fari svo að ágúst verði laus við slíka storma er það aðeins í þriðja sinn frá árinu 1961 sem það ger­ist. Það var mjög óvenju­legt því tólf hita­belt­is­stormar urðu, þar af urðu átta þeirra að felli­bylj­um. Þeir geisuðu hins vegar allir í júní og júlí en eng­inn í ágúst. Það er því ekki óþekkt að frá­vik eigi sér stað milli ára hvað þetta varð­ar.

Árin 2020 og 2021 var hins vegar ákefðin gríð­ar­leg. Í fyrra varð 21 hita­belt­is­stormur og árið þar áður voru þeir 30 sem er met frá upp­hafi mæl­inga.

Það er ekki úti­lokað að aðstæður breyt­ist á næstu dögum og að hita­belt­is­storm­ur, jafn­vel felli­byl­ur, verði til í Atl­ants­haf­inu. Það er þó að mati veð­ur­fræð­ings AccuWe­ather ólík­legt að slíkt ger­ist fyrir ágúst­lok.

„En mögu­lega springur þetta allt úr í sept­em­ber – hver veit?“ spyr Einar Svein­björns­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent