Hvert nýtt ráðuneyti kostar í kringum 190 milljónir króna á ári

Þegar ríkisstjórnarsamstarfið var endurnýjað var ákveðið að fjölga ráðherrum úr ellefu í tólf en ráðuneytunum úr tíu í tólf. Kostnaður við stofnun nýs ráðuneytis er metinn á 190 milljónir króna.

Nýr stjórnarsáttmáli kynntur 28. nóvember 2021
Auglýsing

Heilt yfir er áætlað að kostn­að­ur, vegna stofn­unar nýs ráðu­neytis sé í kringum 190 millj­ónir króna á árs­grund­velli. Núver­andi rík­is­stjórn hefur ákveðið að fjölga ráðu­neytum úr tíu í tólf. Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur lagt fram um breytta skipan ráðu­neyta innan stjórn­ar­ráðs­ins, og var birt á vef Alþingis síð­degis í dag, kemur þó fram að kostn­aður við þá við­bót verði „minni en tvö­faldur sá kostn­aður enda fjölgar ráð­herrum aðeins um einn og tak­markast fjölgun stöðu­gilda aðstoð­ar­manna ráð­herra, rit­ara og bíl­stjóra af því.“

Þar segir enn fremur að gert sé ráð fyrir að end­an­legt mat á kostn­aði vegna skipu­lags­breyt­ing­anna komi fram við til­lögu­gerð við aðra og eftir atvikum þriðju umræðu á Alþingi um frum­varp til fjár­laga fyrir árið 2022.

Auglýsing
Kostnaðurinn sem fellur til er að uppi­stöðu vegna launa­kostn­að­ar, rekstr­ar­kostn­aðar og kostn­aðar við hús­næði. Að frá­töldum ráð­herra og tveimur aðstoð­ar­mönnum megi gera ráð fyrir að að minnsta kosti sex ný stöðu­gildi verði til við stofnun nýs ráðu­neyt­is, þar með talin ný staða ráðu­neyt­is­stjóra. 

Þegar end­ur­nýjað sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks var kynnt greindu for­menn flokk­anna frá því að þeir ætl­uðu að fjölga ráð­herrum í tólf. Þeir hafa aldrei verið fleiri hér­lend­is. 

Auk þess voru mála­flokkar færðir til og kynnt að heiti ráðu­neyta myndu breyt­ast. Í stað atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is, félags­mála­ráðu­neyt­is, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­is, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neytis og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­neytis koma félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyti, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, inn­við­a­ráðu­neyti, mat­væla­ráðu­neyti, menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyti, mennta- og barna­mála­ráðu­neyti og umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent