Hvetur til ábyrgðar í peningastefnu og ríkisfjármálum

Hagfræðiprófessor biður stjórnvöld um að lækka hallarekstur ríkissjóðs og hafa raunvexti jákvæða, þrátt fyrir kröfur fyrirtækja og stjórnmálamanna um að halda vöxtum lágum og auka ríkisútgjöld án fjármögnunar.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Auglýsing

Rík­is­stjórn og Seðla­bank­inn ættu að fara var­lega í pen­inga­stefnu og rík­is­fjár­málum hér­lend­is, þar sem verð­bólgu­þrýst­ingur hefur auk­ist í Banda­ríkj­unum og hag­vaxt­ar­horfur í Kína hafa versn­að. Ráð­legt væri að minnka halla­rekstur rík­is­sjóðs, hafa jákvæða raun­vexti og gæta hófs í launa­kröf­um, en reyna þess í stað að bæta kjör þeirra sem eru verst sett­ir.

Þetta skrifar Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Verð­bólgu­þrýst­ingur vegna pen­inga­prent­unar

Í grein sinni fer Gylfi yfir efna­hags­horfur á heims­vísu, sér í lagi í Banda­ríkj­un­um, Kína og Evr­ópu. Hann segir pen­inga­magn í umferð hafa auk­ist tölu­vert á vest­ur­löndum síðan COVID-19 heims­far­ald­ur­inn byrj­aði í fyrra­vor og að ekk­ert lát verði á þeirri aukn­ingu næsta hálfa til heila árið.

Auglýsing

Sam­kvæmt honum mun aukn­ing pen­inga­magns umfram hag­vöxt að lokum enda í vax­andi verð­bólgu. Nú þegar sé farið að bera á skorti á vinnu­afli víðs vegar um hag­kerfið sem veldur hækkun launa, en Gylfi segir þessar launa­hækk­anir muni leiða til verð­hækk­ana.

Hins vegar segir Gylfi það vera óvíst hvort stýri­vextir muni hækka í Banda­ríkj­un­um, Evr­ópu og Bret­landi, þar sem slíkar hækk­anir gætu haft í för með sér gjald­þrot fyr­ir­tækja, aukna vaxta­byrði hús­næð­is­lána og aukið atvinnu­leysi þeirra sem verst hafa það. Því yrði örugg­lega vax­andi póli­tískur þrýst­ingur á seðla­bank­ana að halda vöxtum lág­um.

Ísland í ágætri stöðu

Í slíkum aðstæðum gæti verð­bólga farið vax­andi á Vest­ur­löndum og smit­ast til Íslands. Þó bætir Gylfi við að stjórn­völd hér­lendis séu í ágætri stöðu til að bregð­ast við henni, þar sem skuldir rík­is­sjóðs, fyr­ir­tækja og heim­ila séu hóf­legar og pen­inga­magn hafi ekki auk­ist umtals­vert.

„Við þessar aðstæður væri ráð­legt að fara var­lega; að minnka halla­rekstur rík­is­sjóðs, að hafa jákvæða raun­vexti sem stuðla að inn­lendum sparn­aði og jákvæðum við­skipta­jöfn­uði, að koma í veg fyrir mikið flæði spá­kaup­mennsku­fjár­magns inn í krón­una og jafna sveiflur hennar með inn­grip­um,“ skrifar Gylfi. „Á vinnu­mark­aði verður að gæta hófs í launa­kröfum og reyna þess í stað að bæta kjör þeirra sem verst eru settir með þeim til­færslu­kerfum rík­is­ins. Sam­keppn­is­hæfi atvinnu­lífs­ins skiptir sköp­um,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Gylfa í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent