Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, aðstoðarritstjóri DV, er hætt störfum, samkvæmt heimildum Kjarnans. Hún er þar með fimmti starfsmaður DV sem hverfur frá störfum síðustu daga eftir að ný stjórn tók yfir útgáfufélag miðilsins. Auk þess hefur Reynir Traustason,ritstjóri og einn aðaleigandi DV, verið settur í tímabundið leyfi út þennan mánuð. Fastlega er búist við því að hann snúi ekki aftur til starfa.
Miklar hræringar hafa verið innan DV undanfarnar vikur vegna átaka í eigendahópi útgáfufélags DV. Síðastliðinn föstudag náði hópur undir forystu Þorsteins Guðnasonar meirihluta í félaginu og ný stjórn skipuð í kjölfarið. Viktoría Hermannsdóttir og Aðalsteinn Kjartansson, blaðamenn á DV, sögðu í kjölfarið upp störfum sínum. Uppsagnarbréfið skrifuðu þau á servíettur og afhentu Jóni Trausta Reynissyni, framkvæmdastjóra DV. Þau hafa bæði ráðið sig til 365 miðla. Til viðbótar sögðu tveir aðrir starfsmenn DV upp störfum.
Ný stjórn DV fundaði um helgina g ákvað að setja Reyni Traustason, ritstjóra og einn aðaleiganda DV, í tímabundið leyfi. Hann má ekki hafa afskipti af fréttum né mæta á starfsstöð á meðan að leyfið stendur yfir. Fastlega er búist við því að Reynir verði rekinn á næstunni. Hallgrímur Thorsteinsson var ráðinn ritstjóri DV í stað Reynis.
Hallgrímur og Þorsteinn funduðu með starfsfólki DV í gærmorgun. Mikill hiti var í starfsmönnum DV á fundinum og þeir ósáttir með brottrekstur Reynis. DV kom að þeim sökum ekki út í dag.